Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 31. júlí 2010 18:57
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefur Everton 
Everton vinnur og vinnur - Cahill með þrennu í dag
Það má með sanni segja að undirbúningstímabilið fari vel af stað hjá Everton því liðið hefur nú leikið fimm leiki á undirbúningstímabilinu og unnið þá alla.

Fimmti leikurinn var í dag þegar liðið vann Norwich með fjórum mörkum gegn tveimur en áður höfðu þeir unnið Sydney, Melbourhne Heart og Brisbane Roar frá Ástralíu og Preston North End.

Tim Cahill var sjóðheitur í dag og skoraði þrennu fyrir Everton og Diniyar Bilyaletdinov skoraði eitt mark.

,,Þetta er undirbúningstímabil og það hefði ekki breytt miklu hvort við hefðum unnið eða tapað, nema ég vil að við venjum okkur á að vinna," sagði David Moyes stjóri Everton við Everton TV eftir leik.

,,Ég er líklega meira vonsvikinn með frammistöðu okkar heilt yfir en í öðrum leikjum en ég hef látið leikmennina æfa mikið í vikunni og vissi að það var alltaf möguleiki á að þetta yrði leikurinn þar sem við myndum dala aðeins."

Norwich hafði jafnað eftir að Everton komst í 2-0 en í kjölfarið bætti Everton við tveimur mörkum.
Slapp
banner
banner