Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 31. júlí 2010 19:05
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: AP 
David Beckham snýr ekki aftur til AC Milan
Massimo Allegri þjálfari AC Milan segir að David Beckham muni ekki snúa aftur til félagsins í þriðja sinn.

Beckham horfði á 1-1 jafntefli AC Milan gegn Arsenal í æfingaleik í dag en Allegri segir að þýði ekki að hann muni aftur koma til félagsins.

Beckham er samningsbundinn Los Angeles Galaxy í Bandaríkjunum en hefur tvisvar farið á láni til AC Milan á meðan bandaríska deildin er í fríi.

Hann er 35 ára gamall og er enn að jafna sig á að hafa slitið hásin í leik með AC Milan sem varð til þess að hann missti af Heimsmeistaramótinu í Suður Afríku í sumar.

Aðspurður hvort Beckham kæmi aftur svaraði Allegri: ,,Ég held ekki, hann er að jafna sig eftir mjög slæm meiðsli og á þessum aldri tel ég að það verði mjög erfitt að snúa aftur."
Slapp
banner
banner