Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 31. júlí 2010 19:15
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Hodgson finnur staðgengil Fabio Aurelio - Hann sjálfan!
Fréttastofa Sky Sports hefur birt vægast sagt óvænta frétt á vef sínum, en þar er haldið fram að Roy Hodgson ætli sér að fá vinstri bakvörðinn Fabio Aurelio aftur til Liverpool, en Brasilíumaðurinn yfirgaf félagið eftir seinasta tímabil.

Aurelio spilaði einungis 71 leik fyrir Liverpool á fjórum tímabilum en meiðsli settu svartan blett á feril þessa hæfileikaríka leikmanns á Anfield. Hann var einungis átta sinnum í byrjunarliði á nýafstöðnu tímabili og var talið að hann myndi snúa aftur til heimalandsins og spila knattspyrnu þar á komandi tímabili.

Liverpool hefur ekki enn fundið staðgengil Aurelio þrátt fyrir að hafa verið orðaðir við fjölda leikmanna, en nú bendir allt til þess að hann muni einfaldlega sjálfur verða eigin staðgengill. Roy Hodgson nýráðinn knattspyrnustjóri liðsins ku hafa miklar mætur á Aurelio og er talið að hann muni spila með Liverpool gegn Borussia Monchengladbach í næsta æfingaleik liðsins.
Slapp
banner
banner
banner