Heimild: Vefur Liverpool
Liverpool staðfesti á vef sínum nú í kvöld að brasilíski bakvörðurinn Fabio Aurelio sé genginn í raðir félagsins að nýju og hafi skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Aurelio hafði sagt skilið við félagið þegar samningur hans rann út í maí og hafði ætlað að leita sér að félagi í heimalandi ´sinu.
Sky komst svo á snoðir um að Liverpool hefði áhuga á að fá hann aftur fyrr í kvöld og nú hefur félagið staðfest endurkomu hans.
,,Ég bað félagið að athuga hvort Fabio væri búinn að finna nýtt félag," sagði Roy Hodgson stjóri liðsins á vef félagsins.
,,Þegar við vorum vissir um að svo væri ekki þá buðum við honum að koma aftur á Melwood svo bæði ég og starfsfólkið mitt og læknaliðið gæti skoðað leikmanninn."
,,Báðir aðilar voru mjög heillaðir og ég er ánægður með að við höfum getað samið að nýju við Fabio."



