Ólafur Örn Bjarnason þjálfari og leikmaður Grindvíkinga var sáttur við að ná stigi í kvöld á móti Val en hefði viljað fá öll þrjú eins og Grindvíkingar kannski áttu skilið.
,,Mér fannst seinni hálfleikurinn að þá vorum við hættulegri framá við og mér fannst við gera þetta ágætlega varnarlega séð, þeir eru ekki að fá mikið. Það koma af og til á okkur smá bylgjur en við stöndumst þær og en við hefðum kannski getað skorað í seinni hálfleik og þá held ég að við hefðum róið með þessi þrjú stig í burtu en við verðum að sætta okkur við þetta eina stig, það er betra en ekki neitt."
Nánar er rætt við Ólaf í sjónvarpinu hér að ofan.
























