,,Frekar myndi ég ekki vilja skora og liðið myndi vinna. Við reyndum en það þýðir ekki að gefa tvö mörk í forskot, það gengur ekki," sagði Sævar Þór Gíslason framherji Selfyssinga eftir 3-2 tap liðsins gegn Val í kvöld.
,,Það eiga allir að vera tilbúnir að mæta í svona leik. Það er mikið búið að ganga á hjá Val. Þetta er heimavöllurinn okkar, hérna ætlum við ekkert að tapa. Við þurfum stig til að koma okkur í baráttuna og það á ekki að þurfa að mótivera menn fyrir leik."
Selfyssingar eru í næstneðsta deildarinnar og liðið er fjórum stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir.
,,Við eigum erfitt prógram framundan. Við eigum FH úti, ÍBV heima, Breiðablik úti og Grindavík heima. Við erum lið sem getur klárlega haft áhrif á toppbaráttuna og það ætlum við svo sannarlega að gera. Við erum ekki að fara að gefa liðum þrjú stig. Það verður gaman að halda áfram og klára þetta ævintýri," sagði Sævar sem segir að Selfyssingar séu ekki fallnir.
,,Nei, langt því frá. Það eru fjögur stig í næsta lið og tólf stig í pottinum. Ef við náum í stig þá erum við komnir í rassgatið á þeim. Ótrúlegt en satt er nóg eftir á tanknum, maður hefði viljað spila aðeins lengur núna."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























