,,Við bara komum í leikinn en vorum ekki tilbúnar, bara mættum ekki til leiks og klúðruðum þessu þá," sagði Laufey Björnsdóttir fyrirliði Fylkis eftir 0-5 tap gegn Stjörnunni í kvöld.
,,Við fengum þrjú mörk á okkur og svo spiluðum við betur í seinni hálfleik en misstum mann útaf," hélt hún áfram en heyrði hún hvað Fjolla Shala sagði við dómarann sem varð til þess að hún fékk rautt?
,,Nei, ég heyrði ekki hvað hún sagði, en hún sagði eitthvað ljótt greinilega," sagði Laufey en settu þær leikinn upp öðruvísi en aðra leiki í sumar?
,,Nei, við settum hann upp með að vera nálægt mönnum og spila boltanum niðri en við gerðum það allavega ekki í dag."
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |























