,,Þetta var mjög gaman þar sem þetta er líka sterkur úti völlur," sagði Inga Birna Friðjónsdóttir leikmaður Stjörnunnar eftir 0-2 sigur á Fylki í Árbænum í kvöld.
,,Við vorum allavega að spila mun betur í fyrri leiknum og vorum mjög samstilltar fyrir þennan leik og unnum rosalega vel sem lið og fundum hvora aðra mjög vel. Fyrri hálfleikurinn var mjög góður. Við duttum aðeins niður í seinni hálfleik."
,,Nú er það bara næsti leikur, það er Þór/KA á heimavelli og það verður bara hörkuleikur."
Rætt er við Ingu Birnu í sjónvarpinu að ofan.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |























