,,Við erum á heimavelli á móti Noregi og verðum að gíra okkur upp fyrir þann leik ef við ætlum að gera eitthvað í þessari keppni," sagði Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður Íslands sem mætir Norðmönnum í undankeppni EM 2012 á föstudagskvöldið.
,,Svo er mjög erfiður leikur í Kaupmannahöfn. Danmörk er með sterkt lið, 3-4 stig úr þeim tveimur leikjum væri mjög gott."
Gylfi Þór hefur haft í nægu að snúast undanfarna daga því hann gekk nú um mánaðarmótin til liðs við Hoffenheim í Þýskalandi frá Reading á Englandi þar sem hann hefur verið undanfarin ár.
,,Þetta er stór deild Bundesligan og mjög sterk. Liðið er með frábæra aðstöðu, 30 þúsund manna völlur og ég held að ég hafi varla séð æfingasvæði sem er betra en þetta."
,,Samningurinn var mjög góður, þetta er gott lið. Það er líka möguleiki á að spila í Evrópudeildinni á næsta ári, jafnvel Meistaradeildinni. Þetta er stórt stökk upp á við."
Nánar er rætt við Gylfa í sjónvarpinu hér að ofan.






















