,,Persónulega er ég mjög vel stemmdur, ég er í fínu formi og það er góð stemmning í hópnum. Við hlökkum mikið til að spila gegn Norðmönnum og Dönum," sagði Rúrik Gíslason framherji íslenska landsliðsins á æfingu liðsins í Keflavík í gær.
Íslenska liðið hafði mætt Norðmönnum tvívegis í undankeppni HM 2010 en var óheppið að vinna ekki. Liðin mætast svo á föstudag á Laugardalsvelli.
,,Við vorum ekki nógu duglegir að nýta færin okkar þá en sýndum að við eigum að geta náð góðum úrslitum á móti Norðmönnum og ætlum að sjálfsögðu að reyna að vinna þá."
,,Við þurfum að vera skarpari í boxinu og klára okkar færi. Mér fannst það vanta síðast, við fengum fullt af færum sem við áttum að nýta."
Rúrik segir einnig að það sé mikil tilhlökkun í Danmörku fyrir seinni leik liðsins, sem verður á Parken.
,,Ég er búinn að fara í svona 100 viðtöl út af þessum leik úti," sagði Rúrik.
Nánar er rætt við Rúrik í sjónvarpinu hér að ofan.




















