,,Okkur langar að vinna fyrsta leikinn og það er mikilvægt svo við verðum að vera vel stemmdir," sagði Veigar Páll Gunnarsson framherji íslenska landsliðsins sem mætir Norðmönnum í undankeppni EM 2012 á föstudag.
,,Ég held að þetta verði bara 50/50 leikur. Norðmennirnir eru örlítið sterkari en við á pappírnum en við erum með heimaleik og vonandi með sem flesta uppi í stúku á bakvið okkur. Ég á von á því að þetta verði jafn leikur."
Íslendingar voru óheppnir að leggja ekki Norðmenn í undankeppni HM 2010 .
,,Það er svolítið súrt að hugsa út í það núna en það eru góðar minningar og slæmar. Við spiluðum báða leikina vel og vorum óheppnir að taka ekki öll sex stigin á móti Noregi. Það er leiðinlegt að hugsa til baka hvernig þetta fór og við fengum bara tvö stig út úr þessu."
Nánar er rætt við Veigar Pál í sjónvarpinu hér að ofan.























