Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
banner
   mið 01. september 2010 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Óli Jó: Brynjar Björn og Árni Gautur mjög tæpir
Ólafur á æfingu íslenska landsliðsins í gær.
Ólafur á æfingu íslenska landsliðsins í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Ég held að það sé fínn andi í þessum hóp og þetta lítur ágætlega út. Auðvitað eru smá skeinur hér og þar en að öðru leiti lítur þetta vel út," sagði Ólafur Jóhannesson þjálfari Íslands á æfingu liðsins á Keflavíkurvelli í gær en liðið mætir Norðmönnum í undankeppni EM 2012 á föstudag.

,,Stærstu spurningarnar eru Brynjar Björn og Árni Gautur, þeir eru báðir mjög tæpir en að öðru leiti eru allir heilir," hélt hann áfram en þó Árni Gautur sé tæpur á liðið annan traustan markvörð í Gunnleifi Gunnleifssyni sem átti stórleik með FH gegn KR í fyrrakvöld.

,,Allir sem eru hér, þeim er treystandi í þetta verkefni sem við erum að fara í og Gunnleifur er svo sannarlega einn af þeim."

Íslendingar voru óheppnir að taka ekki sigra gegn Norðmönnum í undankeppni HM 2010.

,,Við spiluðum tvo leiki við Norðmenn í síðustu keppni sem voru báðir ágætis leikir að okkar hálfu þó við höfum unnið hvorugan. Sérstaklega var sárt að vinna ekki seinni leikinn. En okkur hlakkar til að spila á móti þeim, það er engin spurning."

Nánar er rætt við Ólaf í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner