Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 01. september 2010 13:00
Hörður Snævar Jónsson
Leikmaður umf 1. deild: Getur alltaf grafið upp rangar ákvarðanir
Mynd: Fótbolti.net - Gunnlaugur Júlíusson
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Marteinn Briem leikmaður Víkings átti frábæran leik er liðið vann Gróttu 1-6 á föstudag. Marteinn skoraði tvö mörk og er leikmaður umferðarinnra hér á Fótbolta.net.

Marteinn Briem
Aldur: 21 árs
Uppáhalds lið á England: Liverpool
Uppáhalds knattspyrnumaður: Steven Gerrard, Gattuso, Xavi og Torres
,,Já og nei, mér fannst leikurinn vera ágætur hjá mér en það voru að sjálfsögðu líka mörg atriði sem betur máttu fara. Ég sá ekki hina leikina og gat svo sem alveg búist við því að einhver annar hefði átt stórleik;" sagði Marteinn í samtali við Fótbolta.net.

,,Ég er þokkalega sáttur við minn leik, maður getur alltaf grafið upp nokkrar rangar ákvarðanir þegar maður hugsar til baka, en í heildina er ég bara ánægður.

,,Leikurinn var ekki sá besti sem við höfum spilað þrátt fyrir að hafa aldrei skorað fleiri mörk í sumar. Baráttan var í fínu lagi en við héldum ekki boltanum innan liðsins vel. Vörnin hjá Gróttu var mjög hátt á vellinum og þess vegna var boltinn mikið fyrir aftan vörnina þeirra og leikmenn í kapphlaupi á eftir boltanum, það hentar okkur vel. Við erum með besta gervigras landsins í Víkinni og æfum þar reglulega kl 07:00 á morgnanna þannig að við vorum vel undirbúnir."


Hann er ekki viss hvort þetta sé sinn besti leikur fyrir Víking.

,,Það getur vel verið að einhverjum finnist það, það eru nokkrir leikir sem koma til greina og þetta er einn af þeim.."

Hann var að glíma við meiðsli í vetur og framan af sumri og hefur verið að koma sterkur inn í liðið hjá Víkingum.

,,Jújú það er frábært að komast aftur á ferðina eftir marga mánuði í lyftingasalnum og það skemmir ekki þegar liðinu gengur vel og maður á sjálfur þátt í því."

Það er í höndum Víkinga að koma sér upp en liðið er á toppnum.

,,Nú er lítið eftir og hvert stig verður mikilvægara. Ef við klárum okkar þá förum við upp, það er bara þannig og þannig viljum við hafa það," sagði Marteinn sem kann vel við að spila með Helga Sigurðssyni frammi.

,,Það er góð reynsla að spila með honum eins og mörgum öðrum í liðinu. Mér finnst fínt að spila í kringum hann frammi og samspil okkar á bara eftir að batna."

Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 18.umferðar: Sigurður Egill Lárusson (Víking)
Leikmaður 17.umferðar: Hólmbert Aron Friðjónsson (HK)
Leikmaður 16. umferðar: Eyjólfur Tómasson (Leiknir R.)
Leikmaður 15. umferðar: Erlingur Jack Guðmundsson (Þróttur)
Leikmaður 14. umferðar: Gunnar Einarsson (Leiknir R.)
Leikmaður 13. umferðar: Kristján Ari Halldórsson (ÍR)
Leikmaður 12. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 11. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 10. umferðar: Kristján Finnbogason (Grótta.)
Leikmaður 9. umferðar: Viktor Örn Guðmundsson (Víkingur R.)
Leikmaður 8. umferðar: Muamer Sadikovic (Þróttur)
Leikmaður 7. umferðar: Halldór Arnarsson (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)
Slapp
banner
banner