Heimild: Sky
Alexander Hleb segir að honum hafi staðið til boða að ganga til liðs við Liverpool og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni áður en hann ákvað að skrifa undir hjá Birmingham.
Hleb gekk til liðs við Birmingham í gær á láni út tímabilið en þessum landsliðsmanni Hvíta Rússlands hefur gengið illa að festa sig í sessi hjá Barcelona síðan hann hélt til Katalóníu frá Arsenal.
„Það voru mörg tilboð, frá Liverpool, Tottenham og Benfica,“ sagði Hleb við hvít-rússneska dagblaðið Pressball.
„En það var nauðsynlegt að íhuga alla möguleikana vandlega. Sums staðar var ekki hægt að komast að samkomulagi.“
„Birmingham virtist hafa meiri áhuga á að fá mig en allir hinir svo að þeir voru minn fyrsti kostur.“
„Þeir eru ekki Arsenal, þeir spila ekki á hverju ári í Meistaradeildinni, en það er mikilvægt fyrir mig að spila reglulega og ná aftur að sýna mitt rétta andlit.“

