Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur bætt við tveimur leikmönnum í hópinn fyrir leikinn gegn Tékkum sem fer fram þriðjudaginn 7. september, en þetta kemur fram á vef KSÍ. Þeir Guðmundur Reynir Gunnarsson úr KR og Elfar Freyr Helgason úr Breiðabliki koma inn í hópinn.
Jósef Kristinn Jósefsson leikmaður Grindavíkur er meiddur og getur ekki verið með í leiknum. Þá á Hólmar Örn Eyjólfsson við meiðsli að stríða og er óvíst með þátttöku hans í leiknum. Hann mun engu að síður fara með liðinu út til Tékklands og fara því 19 leikmenn í ferðina að þessu sinni.
Sigur Íslendinga í þessum leik gæti komið þeim í mjög sterka stöðu og gæti svo farið að þeir vinni riðilinn ef Þjóðverjum tekst að vinna Tékka þann 3. september.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |


