,,Þetta er mikilvægur leikur fyrir okkur, þetta er fyrsti leikurinn í undankeppni EM. Við verðum að koma hingað og ná í þrjú stig," sagði Morten Gamst Pedersen leikmaður Blackburn og norska landsliðsins í samtali við Fótbolta.net í gær.
Ísland tekur á móti Noregi á föstudaginn en þetta er fyrsti leikurinn í undankeppni EM 2012.
,,Þetta er erfiður riðill, við spiluðum illa hérna síðast þegar við gerðum 1-1 jafntefli. Portúgal eru líklegastir og svo eru Danir þarna líka sem voru á HM, þetta er erfiður riðill en við viljum komast áfram og verðum því að byrja vel."
,,Þetta voru erfiðir leikir síðast, þetta var samt líklega lélegasti leikur okkar í tvö ár. Við erum samt með sterkari lið en við vorum með í fyrra."
Eiður Smári Guðjohnsen er ekki með íslenska landsliðinu en Morten er ekki viss hvort að liðið muni sakna hans.
,,Ég veit það ekki, hann hefur ekkert spilað með Monaco, hann var ekki góður gegn Liechtenstein. Hann er góður leikmaður þegar hann er í formi en þegar hann er ekki í formi eru leikmenn sem geta tekið við hans hlutverki."
,,Það er mikilvægt að byrja vel, við ætlum okkur þrjú stig og við verðum svekktir ef við förum ekki með þau heim á laugardaginn."
,,Mér líður vel, tímabilið hefur byrjað vel og ég er spenntur fyrir leiknum."
























