Giuseppe "Joe" Funicello er farinn frá Þór en hann hefur gert eins og hálfs árs samning við finnska úrvalsdeildarliðið IFK Mariehamn.
Funicello verður því ekki með Þór í síðustu þremur umferðunum í fyrstu deildinni en liðið á í harðri baráttu um sæti í Pepsi-deildinni og mætir nágrönnunum í KA í mikilvægum leik annað kvöld.
Þessi 23 ára gamli ítalski vinstri bakvörður kom til Þórs fyrir tímabilið en hann hefur leikið sautján leiki í fyrstu deildinni í sumar.
,,Þetta er góður fótboltamaður og sérstaklega góður drengur," sagði Páll Viðar Gíslason þjálfari Þórs við Fótbolta.net í dag.
,,Auðvitað söknum við hans en samgleðjumst honum að sama skapi. Þetta er það sem hann stefndi á að koma hingað og nota það sem stökkpall til að komast lengra."
,,Það var samið um það í upphafi og að sjálfsögðu er staðið við það. Við förum ekki fram á neitt, hann fær bara að fara.




