Afturelding 0 - 1 Breiðablik
0-1 Hlín Gunnlaugsdóttir ('67)
Eins og svo oft áður voru aðstæður til knattspyrnuiðkunar á Varmárvelli til fyrirmyndar þegar lið Aftureldingar og Breiðabliks gengu inná völlinn nú í kvöld.
0-1 Hlín Gunnlaugsdóttir ('67)
Eins og svo oft áður voru aðstæður til knattspyrnuiðkunar á Varmárvelli til fyrirmyndar þegar lið Aftureldingar og Breiðabliks gengu inná völlinn nú í kvöld.
Breiðablik var fyrir leikinn ennþá með í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn og mátti ekki við að tapa stigum í Mosfellsbænum en Afturelding er ennþá með falldrauginn andandi ofaní hálsmálið.
Leikurinn fór fjörlega af stað og voru það heimastúlkur sem áttu fyrsta skotið. Ashley Mae Kirk átti þá ágætis tilraun með vinstri fæti sem fór rétt framhjá stönginni.
Á 9.mínútu átti síðan Harpa Þorsteinsdóttir gott skot sem Nína Björk Gísladóttir í marki Aftureldingar varði vel.
Eftir þetta róaðist leikurinn og Blikar héldu boltanum en komust lítt áleiðis gegn þéttum varnarpakka Aftureldingar sem var vel skipulagður og gaf fá færi á sér. Flautað var til hálfleiks en áður höfðu aðeins nokkur hálffæri litið dagsins ljós. Hálfleikstölur 0-0 í Mosfellsbænum.
Síðari hálfleikur fór af stað eins og sá fyrri endaði en á 56.mínútu fór að draga til tíðinda. Telma Þrastardóttir slapp þá ein inn fyrir og átti aðeins eftir að skjóta framhjá markverði Breðabliks en henni brást bogalistin og boltinn vel framhjá. Aðeins tveimur mínútum síðar áttu Blikar færi en Nína Björk sem fyrr vandanum vaxin í markinu og varði vel.
Mínútu síðar átti heldur betur eftir að fara um stúkuna að Varmá því Telma Þrastardóttir slapp þá í gegn og var felld að er virtist og ef dómarinn hefði dæmt hefðu Blikar mögulega misst mann af velli og vítaspyrna dæmd, en svo var ekki.
Áhorfendur heimaliðsins voru allt annað en sáttir við þessa ákvörðun dómarans en ekki átti hann eftir að verða vinsælli því sem á leið á leikinn.
Á 67. mínútu sluppu Blikar í gegn og voru nálægt því að skora en María Rannveig Guðmundsdóttir varðist vel og tæklaði boltann í horn. Hornspyrnan var tekin og Hlín Gunnlaugsdóttir átti góðan skalla sem fór í slána, niður og inn. Harpa Ásgeirsdóttir skallaði boltann þó í burtu af línunni en aðstoðardómarinn gaf til kynna að boltinn hefði farið inn.
Heimastúlkur voru lítt hrifnar af þessari ákvörðun dómarans og voru slegnar yfir markinu sem þær fengu á sig. Blikarnir voru ferskari næstu mínúturnar eftir þetta en smátt og smátt komust heimastúlkur aftur inn í leikinn.
Þegar það voru tíu mínútur eftir að leiknum fór pressan að þyngjast verulega að marki Breiðabliks, en helst ber að nefna skot Samantha Brand sem fór rétt framhjá.
Á 87.mínútu leiksins fengu heimastúlkur svo hornspyrnu. Aldís Mjöll Helgadóttir skoraði þá með skalla eftir mikinn hamagang í vítateig Breiðabliks en dómari leiksins dæmdi markið af og dæmdi aukaspyrnu á Aldísi.
Eftir þetta fjaraði leikurinn út án þess að Afturelding næðu að skapa sér marktækifæri og góð þrjú stig Blika í höfn.
Hákon Þorsteinsson dómari leiksins fær ekki háa einkunn hjá fréttaritara en hann virtist ekki hafa mikla stjórn á leiknum.
Hrósa verður Aftureldingarliðinu fyrir mikla baráttu og góðan leik. Það eru þó Blikar sem fara heim með öll stigin og þær eru enn inn í toppbaráttunni.



