Stuðningsmenn KA ætla að hittast í KA-heimilinu fyrir leikinn gegn Þór í kvöld. Þar er stefnan sett á að borða saman og taka létt spjall.
Gengið verður síðan fylktu liði á völlinn og horft á nágrannaslaginn þar sem menn ætla að styðja sitt lið til sigurs.
Dagskráin í KA-heimilinu hefst kl. 16:15.
Spáð er frábæru veðri og eru áhangendur hvattir til að mæta snemma.


