Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 01. september 2010 22:01
Sunna Stefánsdóttir
Umfjöllun: Þróttur upp eftir sigur á Selfossi í fjörugum leik
Kvenaboltinn
Þróttarar fagna sigrinum í kvöld fyrir framan þétt setna stúku.
Þróttarar fagna sigrinum í kvöld fyrir framan þétt setna stúku.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fríða handleikur boltann eftir skot Olgu Færseth.
Fríða handleikur boltann eftir skot Olgu Færseth.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðrún Fema lyftir rauða spjaldinu.
Guðrún Fema lyftir rauða spjaldinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anna misnotar vítaspyrnuna.
Anna misnotar vítaspyrnuna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur 3 - 1 Selfoss
1-0 Fríða Þórisdóttir ('3)
1-1 Olga Færseth ('31)
2-1 Rut Þórðar Þórðardóttir ('54)
3-1 Margrét María Hólmarsdóttir ('88)
Rautt spjald: Fríða Þórisdóttir ('78)

Þróttur tryggði sér sætið í Pepsí deild kvenna þegar þær lögðu Selfyssinga á Valbjarnarvelli í kvöld. Fyrri leikur liðana fór 1-1 á Selfossi og ljóst að um mjög jöfn lið er að ræða. Gaman var að sjá hversu margir áhorfendur voru mættir á völlinn í kvöld enda var fallegt veður til knattspyrnuiðkunnar.

Bæði liðin mættu ákveðin til leiks og voru Þróttarar ekki lengi að setja mark sitt á leikinn því strax á 3. mínútu skoraði fyrirliðinn Fríða Þórisdóttir með góðum skalla.

Eftir markið sóttu Selfyssingar mikið að marki Þróttar og vildu fá mark dæmt á 17 mínútu þegar að varnarmaður Þróttar skaut í slánna og niður, en Guðrún Fema dómari leiksins taldi boltann ekki hafa farið yfir línuna.

Selfyssingar héldu áfram að sækja og á 31, mínútu náðu þær að jafna. Anna María Friðgeirsdóttir átti góða sendingu inná Olgu Farsæth sem tók vel á móti boltanum og sendi hann snyrtilega framhjá Ásu Dögg í marki Þróttar.

Þróttur var nálægt því að bæta við öðru marki strax í næstu sókn, Margrét María Hólmarsdóttir fékk langa sendingu inn fyrir vörn Selfoss en skaut boltanum rétt framhjá.

Selfyssingar áttu síðasta markfæri fyrri hálfleiks á 42. mínútu þegar að Thelma Sif Kristjánsdóttir átti gott skot fyrir utan teig, en framhjá markinu.
Staðan jöfn í hálfleik 1-1 og mikið jafnræði með liðunum þó Selfyssingar ættu fleiri markfæri.

Síðari hálfleikur fór rólegri á stað, en á 52. mínútu fékk Hrefna Huld Jóhannesdóttir gullið tækifæri til að koma Þrótturum yfir. Hún fékk langa sendingu inn fyrir vörnina og skaut góðu skoti sem stefni beint undir þverslánna, en Dagný Pálsdóttir varði á ótrúlegan hátt.

Strax í næstu sókn þeirra á 54. mínútu náðu þær þó að skora. Boltinn kom inn í vítateig Selfyssinga, mikið klafs myndaðist í teignum sem endaði með því að Ruth Þórðar Þórðardóttir skoraði og staðan orðin 2-1 í Laugardalnum.

Selfyssingar pressuðu mikið á Þróttara eftir markið og á 71. mínútu komst Guðmunda B. Óladóttir upp að endamörkum og átti fast skot að marki sem fór rétt framhjá.

Á 77. mínútu virtist sverta fyrir útlitið hjá Þrótti. Fríða Þórisdóttir fékk sitt annað gula spjald fyrir að handleika boltann innan vítateigs og var rekin útaf.

Selfyssingar fengu vítaspyrnu og þar með gullið tækifæri til að komast upp í Pepsi deildina þar sem 2-2 staða hefði verið nægileg fyrir þær vegna fleirri marka á útivelli. Anna Þorsteinsdóttir, sem var einn besti leikmaður Selfoss í dag brást þó bogalistin og skaut rétt framhjá.

Mikil dramatík var á síðustu mínutum og gat boltinn legið í netinu hjá báðum liðum. Það voru þó Þróttarar sem náðu að bæta við þriðja markinu á 88. mínútu. Margrét María Hólmarsdóttir náði að stinga sér inná milli varnarmanns og markvörðs Selfyssinga og leggja boltann í netið.

Lokatölur 3-1 fyrir Þrótt í Laugardalnum í jöfnum og skemmtilegum leik. Mikið jafnræði var með liðunum og gat sigurinn fallið með báðum liðum en það voru þó Þróttarar sem kláruðu færin sín betur í kvöld.

Það eru því Þróttur og ÍBV sem spila í Pepsi deild kvenna að ári og spila um Íslandsmeistaratitil 1. deildar á sunnudaginn 5. september.

Þróttur: Ása Dögg Aðalsteinsdóttir, Hallveig Ólafsdóttir, Fríða Þórisdóttir, Ruth Þ. Þórðardóttir, Karlotta Halldórsdóttir, Sunna Rut Ragnarsdóttir, Kristrún R. Rúnarsdóttir, Margrét M. Hólmarsdóttir, Valgerður Jóhannsdóttir, Soffía V. Kristinsdóttir, Hrefna Huld Jóhannesdóttir(Kristín Einarsdóttir)
Ónotaðir varamenn: Rósa B. Sigurgeirsdóttir, Harpa Lind Guðnadóttir, Eyrún K. Eyjólfsdóttir, Ólína Kr. Sigurgeirsdóttir.

Selfoss: Dagný Pálsdóttir, Olga Farsæth, Anna Þorsteinsdóttir, Þóra M. Ólafsdóttir, Dagný Hanna Hróbjartsdóttir, Guðmunda B. Óladóttir, Thelma Sif Kristjánsdóttir, Aníta Lísa Svansdóttir(Guðbjörg Una Hallgrímsdóttir), Anna María Friðgeirsdóttir, Bríet Ómarsdóttir, Eva Lind Elíasdóttir.
Ónotaðir varamenn: Aníta Guðlaugsdóttir, Íris Sverrisdóttir, Guðbjörg Una Hallgrímsdóttir, Sif Sigurðardóttir, Bára Sif Guðlaugsdóttir.
Slapp
banner
banner
banner