Heimild: Sky
Javier Mascherano nýr leikmaður Barcelona segir Liverpool ljúga um ástæðu þess að hann vildi fara.
Hann gekk í raðir Barcelona frá Liverpool í síðustu viku fyrir 20 milljónir punda.
,,Þegar þeir fóru að setja fjölskyldu mína inn í þetta og tala um hluti sem var algert bull þá var ég ósáttur;" sagði Mascherano.
,,Þeir höfðu lofað mér hlutum í heilt ár en stóðu aldrei við það að fullu."
,,Þetta hafði ekkert með fjölskyldu mína að gera. Þegar þú heyrir svona lygar þá verður þú reiður:"




