Heimild: Soccernet
Shrewsbury Town, sem leikur í fjórðu efstu deild á Englandi, mun fá hálfa milljón punda ef Joe Hart leikur með enska landsliðinu gegn Búlgaríu annað kvöld.
Hart fór feril sinn hjá Shrewsbury áður en Manchester City keypti hann árið 2006.
Í samningi félagana er klásúla sem segir að Shrewsbury muni fá hálfa milljón punda þegar Hart leikur sinn fyrsta mótsleik með enska landsliðinu og allt bendir til þess að það verði annað kvöld.
,,Ég held að það sé rétt hjá mér að Shrewsbury fái hálfa milljón ef ég spila á föstudag," sagði Hart.
,,Það er há upphæð fyrir félagið. Þetta er há upphæð fyrir svona félag og ég er ánægður fyrir þeirra hönd þrátt fyrir að það sé bara einn leikmaður ennþá liðinu frá mínum tíma þar. Allir aðrir eru farnir."

