,,Ég býst við erfiðum leik. Þetta var erfiður leikur á síðasta ári og þeir (Ísland) eru gott lið," sagði Erik Huseklepp kantmaður Norðmanna um leikinn gegn Íslendingum á Laugardalsvelli annað kvöld.
,,Okkar markmið er að ná meira út úr þessum leik heldur en eitt stig eins og síðasta ári. Við viljum ná í þrjú stig."
Kristján Örn Sigurðsson lék með Huseklepp hjá Brann og þessir fyrrum liðsfélagar munu mætast annað kvöld.
,,Hann er erfiður andstæðingur. Ég hef spilað nokkrum sinnum gegn honum á æfingum en ekki oft í leikjum. Þetta verður áhugaverður leikur."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















