Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. september 2010 08:00
Magnús Már Einarsson
Hin Hliðin - Elínborg Ingvarsdóttir (Grindavík)
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Steinunn Óskarsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þá er komið að hinni hliðinni hér á Fótbolta.net en að þessu sinni er það Elínborg Ingvarsdóttir leikmaður Grindavíkur sem sýnir á sér hina hliðina.

Smellið hér til að sjá hina hliðina á fleiri leikmönnum

Fullt nafn: Elínborg Ingvarsdóttir

Gælunafn: Ellabogga, Bogga, Elanó, Eló, Nollí.

Aldur: 20 ára

Gift / sambúð? nei
Börn: nei

Hvað eldaðir þú síðast? Ommulettu með skinku, osti og sveppum

Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Borða allt plús hvítlauksolía og parmesan.

Uppáhaldssjónvarpsefni? How I met your mother, Gossip Girl, Vampire Diaries og Private Practice.

Besta bíómyndin? Hangover og Lion King eru í uppáhaldi.

Uppáhaldsútvarpsstöð: Fm957 og X-ið. Annars er ég ofast bara með einhver góðan disk í tækinu.

Hver er uppáhalds platan þín? Because of the times með Kings of leon

Uppáhaldsdrykkur? Ísköld kók í dós

Uppáhalds vefsíða? Að öllum líkindum Facebook

Ertu hjátrúarfull(ur) fyrir leiki ( ef já, hvernig þá)? Nei og já, reyni bara að halda sömu rútínunni ef vel gengur.

Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Bara taka vel á honum og brosa til hans.

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Kvennaliði Vals. Finnst fáranlegt hvað margar góðar stelpur sitja á bekknum hjá Val sem eiga mjög góða möguleika á byrjunarliðssæti í öðrum góðum liðum.

Hver var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Beckham og Solskjær

Erfiðasti andstæðingur? Sarah Mcfadden

Ekki erfiðasti andstæðingur? Hmm.. held ég verði nú að segja pass við þessu.

Besti samherjinn? Ég og Anna Þórunn höfum alltaf verið góðar saman á miðjunni. En annars eru Mcfadden og Bentína mjög traustar saman fyrir aftan.

Sætasti sigurinn? Í 4.flokki þegar við Grindavíkurstelpurnar unnum fyrsta Íslandsmeistaratitillinn eftir svakalegan úrslitaleik á móti Maríu Rós og félögum úr Fram.

Mestu vonbrigði? Að tapa með u19 á móti Svíþjóð á EM.

Hvað er þitt uppáhaldslið í enska boltanum? Manchester United

Uppáhaldsknattspyrnumaður? Wayne Rooney

Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Eiður Smári

Efnilegasti knattspyrnumaður landsins? Ingi Steinn Ingvarsson

Fallegasti knattspyrnumaðurinn í deildinni? Það eru þó nokkuð margir myndarlegir.

Fallegasta knattspyrnukonan? Hef ekki myndað mér neina sérstaka skoðun á því.

Grófasti leikmaður deildarinnar? Rakel Hönnu sparkaði harkalega í mig fyrir norðan í sumar, ætli ég gefi henni ekki bara þennan titil;)

Besti íþróttafréttamaðurinn? Gummi Ben

Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Yngristelpurnar í liðinu eru svoldið grimmar. Ég gef Hertu og Elísubet þetta atkvæði.

Hefurðu skorað sjálfsmark? Já, fyrsta skiptið núna í sumar. Markamaðurinn okkar ætlaði að hreinsa frá og skaut í mig og inn.

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Gleymi því aldrei þegar við kepptum á móti KR í 3. flokki og ég var að hlaupa inn og er komin nánast meter fyrir framan markið og það kemur góður bolti niðri inní og það eina sem ég þarf að gera er að pota honum inn en ég tók hann einhvernveginn fáranlega og sparkaði honum þannig að hann endaði í innkasti. Skil ekki ennþá hvernig ég fór að þessu..

Hvenar lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki? 2005. 15 ára.

Hvernig finnst þér Fótbolti.net? Klassa síða.

Kíkir þú oft á Fótbolti.net? Já, nokkuð oft.

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Klárlega að leyfa hárspennur. Kjánaleg regla.

Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Kings of leon, Radiohead, Muse, Beyonce og fleiri. En Kings of leon er númer eitt á listanum.

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera á æfingu? Hita upp og skokka niður.

Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Ingibjörg Hinriks.

Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Herjólfsdalur ákveðna helgi.

Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Stundum þarf það eitt snooze en yfirleitt ekki.

Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Held það sé búið að heilaþvo mig með M. Jordan. Annars er Rooney alltaf minn maður.

Fyrir utan knattspyrnu, fylgist þú með öðrum íþróttum? Já, aðallega körfubolta.

Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Það er langt síðan, hef góð sambönd.

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Umbro/Adidas

Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla? Hef aldrei verið eitthvað sérstök í ensku.

Vandræðalegasta augnablik? Nýliðavígslan fyrir A-landsliðið var frekar vandræðanleg. Og er meira að segja til á upptöku. Það var tekið ”So you think you can dance” show þar sem ég og Bergling B. Þorvalds vorum valdnar saman og þurftum að dansa saman nútímadans, svo var cut-að nokkra út og þá var ég og Mist einar eftir og áttum að dansa einstaklingsdans sem endaði þannig að ég tapaði. Enda er Mist svakalegur hipphopp dansari, átti ekki roð í hana.

Komdu með eina staðreynd um þig sem flestir vita ekki um: Tók þátt í söngvakeppni samfés árið 2004 með vinkonum mínum. Kann samt ekki að syngja.
Slapp
banner
banner