Sölvi Geir Ottesen leikmaður FC Kaupmannahfnar verður fyrirliði íslenska liðsins gegn Noregi á morgun. Þetta kom fram í fréttum á Stöð2.
Hermann Hreiðarsson er frá vegna meiðsla og tekur Sölvi við bandinu.
Flestir höfðu búist við því að Heiðar Helguson myndi bera bandið eins og undanfarið en svo er ekki.
Sölvi mun því leiða liðið út á Laugardalsvöllinn í fyrsta leiknum í undankeppni EM2012.



