Þór 3 - 0 KA:
1-0 Atli Sigurjónsson ('5)
2-0 Þorsteinn Ingason ('24)
3-0 Sigurður Marinó Kristjánsson ('71)
1-0 Atli Sigurjónsson ('5)
2-0 Þorsteinn Ingason ('24)
3-0 Sigurður Marinó Kristjánsson ('71)
Þórsarar báru sigurorð af grönnum sínum í KA 3-0 þegar liðin mættust á Þórsvelli í blíðskapar veðri og að viðstöddum 1.550 manns. Heimamenn fengu óskabyrjun í leiknum þegar Atli Sigurjónsson kom heimamönnum yfir eftir aðeins fimm minútna leik. Þorsteinn Ingason bætti við öðru marki heimamanna eftir 25 mínútna leik og það var svo Sigurður Marinó Kristjánsson sem innsiglaði sigur heimamanna með marki af 40. metra færi 19. mínútum fyrir leikslok.
KA-menn fengu þó fyrsta færi leiksins og það kom í hlut Daniels Alan Stubbs sem fékk knöttinn óvænt innan markteigs heimamanna en Björn Hákon markvörður Þórs gerði vel og varði í horn. Ekkert kom þó út úr hornspyrnunni. Stuttu síðan brunuðu heimamenn í sókn, kom lagleg fyrirgjöf sem Sandor Matus markvörður KA náði ekki til boltans.
Boltinn barst til Atla Sigurjónsson og eftir smá klafs í teignum náði Atli að setja knöttinn í netið og koma þar með heimamönnum yfir, 1-0. Við markið hresstust heimamenn töluvert við og fóru að pressa á gestina.
Það var þó Guðmundur Steingrímsson sem fékk fínt færi en Björn Hákon í marki heimamanna gerði vel og varði gott skot Guðmundar. Fjórum mínútum síðar átti Sigurður Marinó Kristjánsson frábæran sprett fyrir heimamenn, gaf góða stungusendingu á Sveinn Elías sem var að sleppa í gegn.
Góður varnarleikur gestanna varð þó til þess að Sveinn náði ekki skoti en náði að renna knettinum til Kristjáns Steins en skot hans small í stönginni fyrir nánast opnu marki. Þung pressa heimamanna skilaði sér síðan þegar Þorsteinn Ingason náði að setja knöttinn í netið af harðfylgi. KA-menn voru stálheppnir aðeins þremur mínútum síðar þegar góð aukaspyrna Atla Sigurjónssonar af 23. metra færi hafnaði í stönginni.
Þórsarar héldu áfram pressunni á gestina en náðu ekki að bæta við marki. Á 41. Mínútu skall þó hurð nær hælum við mark heimamanna þegar góður skalli Hauks Hinrikssonar eftir aukaspyrnu Dean Martins hafnaði í þverslánnni. KA-menn mega síðan þakka Sandor markverði sínum fyrir að hafa ekki verið 3-0 undir í hálfleik þegar hann varði frá Sveini Elíasi sem var sloppinn einn í gegn eftir mistök í vörn KA á lokamínútu fyrri hálfleiks.
Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn ögn betur en gestirnir og Jóhann Helgi Hannesson fékk fyrsta færið en skot hans rétt yfir markið. Þremur mínútum síðar átti Atli Sigurjónsson fínan sprett og ágætis skot að marki en Sandor gerði vel og varði. Þegar líða tók á hálfleikinn fóru gestirnir að sækja örlítið í sig veðrið.
Á 63. Mínútu fengu gestirnir hornspyrnu, fín hornspyrn sem fór beint á kollinn á Janez Vrenko sem átti hörku skalla en Gísli Páll Helgason var á réttum stað og bjargaði á elleftu stundu. Þremur mínútum síðar var Sigurður Marinó óheppinn að bæta ekki við þriðja marki heimamanna er skot hans stefndi í netið en varnarmenn KA náðu að bjarga á síðustu stundu.
Þórsarar náðu loks að bæta við sínu þriðja marki á 71. mínútu og var það Sigurður Marinó að verki. Þórsarar snéru þá vörn í sókn, há stungusending sem var of föst og Sandor Matus markvörður var fyrstur að boltanum og hreinsaði frá marki en var þó undir pressu frá Ottó Hólm. Hreinsun Sandors varð þó ekki nægilega góð þar sem knötturinn fór beint til Sigurðar Marinó sem var fljótur að hugsa og lét bara vaða á markið af nærri 40 m. færi. Knötturinn sveif fallegum boga yfir Sandor og undir slánna, óverjandi. 3-0 og staða heimamanna því vænleg.
Eftir þriðja markið skapaði hvorugt liðið sér mörg opin marktækifæri, gestirnir voru þó ögn pirraðir og brutu stundum af sér frekar klaufalega. Hvorugu liðinu tókst að bæta við mörkum og því hrósuðu heimamenn sanngjörnum 3-0 sigri og halda því enn í vonina um sæti í efstu deild.
