,,Að vinna KA 3-0 á heimavelli í svona veðri fyrir framan 1500 manns, ég held að það gerist ekki sætara en það," sagði Þorsteinn Ingason fyrirliði Þórs eftir 3-0 sigur liðsins á KA í fyrstu deildinni í kvöld.
Þorsteinn skoraði sjálfur annað mark Þórs í leiknum en það er fyrsta mark hans í meistaraflokki.
,,Við vorum komnir í 1-0 og vorum aðeins að ströggla þannig að ég ákvað að fara fram og klára þetta. Það varð einhver að taka það á sig."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























