Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
banner
   fös 03. september 2010 09:00
Matthías Freyr Matthíasson
Óli Jóh: Þetta verður örugglega mikill bardagi
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu er að legga lokaundirbúning á liðið sitt sem mætir Noregi á Laugardalsvelli í kvöld klukkan 19:00. Fréttaritari Fótbolta.net hitti Ólaf í gær og ræddi við hann um leikina sem framundan eru á móti Noregi í kvöld eins og áður segir og leikinn við Danmörku sem fram fer á Parken næstkomandi Þriðjudag. Við byrjuðum á því að spurja Ólaf hvernig honum litist á leikinn á móti Norðmönnum og hvernig hann ætlaði sér að tækla hann.

,,Mér lýst mjög vel á þetta og búinn að setja saman byrjunarliðið. Þetta eru tvö ekkertt ósvipuð lið, líkamlega sterk sem spila líkamlega sterkan fótbolta. Þannig að þetta verður örugglega mikill bardagi"

Rúrik Gíslason er búinn að vera veikur síðustu daga. Er hann orðinn hress?

,,Rúrik er búinn að vera veikur alla þessa viku þannig að því miður er hann ekki algjörlega tilbúinn. En hann kemur við sögu í leiknum en hvað það verður mikið er óljóst"

Sölvi Geir Ottesen kemur til með að bera fyrirliðabandið í leiknum í fyrsta sinn. Hver er ástæðan fyrir því að hann er valinn í þetta hlutverk.

,,Hermann Hreiðarsson er fyrirliði Landsliðsins en hann er meiddur og í hans forföllum hef ég ákveðið að Sölvi verði fyrirliði. Hann er frábær fyrirmynd fyrir þessa ungu drengi og frábær íþróttamaður og er á virkilega góðum stað í sínum fótboltaferli "

Íslenska liðið þekkir það Norska vel, voru með þeim í undankeppninni fyrir HM. En Ísland hefur ekki tapað fyrir Noregi í mótsleikjum síðan 1975, er ekki pressa á að það breytist ekki?

,,Ég vissi nú ekki einu sinni af þessu meti eins og þú kallar það, þú setur ákveðna pressu á mig meira að segja. En að sjálfsögðu þekkjum við vel til Norska liðsins alveg eins og þeir þekkja vel til okkar"

Norskir fjölmiðlar voru að halda því fram í dag að Rúnar Kristinsson sem hefur verið Ólafi til aðstoðar með að kynna sér Norska liðið, hefði verið að taka upp lokaæfingu liðsins. Er eitthvað til í þessu eða eru Norðmenn bara orðnir stressaðir?

,,Rúnar tekur út Norska liðið fyrir mig og gerði það í síðustu keppni líka og þekkir vel til norska fótboltans. Bæði hefur hann spilað þar og á marga góða vini þar sem hann fær eflaust upplýsingar frá. En hann stóð þarna uppi ( á laugardalsvelli ) og við hliðina á honum var kvikmyndatökuvel sem á að nota á leiknum. Ég held nú að Norðmenn hafi sagt þetta meira í spaugi en alvöru, en nei hann var ekki að taka upp"

Kemur það sér betur fyrir Ísland að mæta þjóðum sem þeir þekkja vel eins og Noregi og Danmörku í þessum fyrstu leikjum undankeppninnar heldur en til að mynda Portúgal.

,,Mér finnst ágæt að fá að byrja á móti Norðmönnum og Dönum og fá þessi skandinavíu lið"

Er síðan ekki um að gera að hvetja fólk til að mæta á völlinn og styðja við bakið á strákunum?

,,Ég vill meina það að með auknu stuðningi áhorfenda og ég tala nú ekki um ef allir verða í bláu að það hjálpi okkur feiknarlega mikið og ég skora á fólk að mæta og hvetja okkur"

Ítarlega er rætt við Ólaf í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner