Heimild: BBC
David Beckham, leikmaður LA Galaxy, vonast til að spila sinn fyrsta leik eftir meiðsli þegar liðið mætir Columbus Crew 11.september næstkomandi.
Beckham, sem er 35 ára, hefur verið frá keppni síðan hann sleit hásin í leik með AC Milan í mars síðastliðnum.
Beckham, sem er 35 ára, hefur verið frá keppni síðan hann sleit hásin í leik með AC Milan í mars síðastliðnum.
Búist var við að Beckham myndi snúa aftur í byrjun október en bati hans hefur verið hraður.
,,Ég krosslegg fingur og vonandi mun ég spila einhvern hluta af leiknum gegn Columbus," sagði Beckham.
,,Ég verð á bekknum og vonandi kemst ég inn á völlinn í 15-20 mínútur."


