Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   lau 04. september 2010 09:00
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Eyjamenn, Heimir og landsliðsumræða í útvarpinu í dag
Heimir Þorsteinsson verður á línunni.
Heimir Þorsteinsson verður á línunni.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Það verður nóg um að vera í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Þátturinn er á dagskrá alla laugardaga milli 12 og 14 á X-inu FM 97,7.

Eyjamenn eru á toppi Pepsi-deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir og Tryggvi Guðmundsson og Finnur Ólafsson leikmenn liðsins kíkja í heimsókn.

Guðmundur Hilmarsson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu, og Eiríkur Stefán Ásgeirsson, íþróttafréttamaður á Fréttablaðinu, kíkja í heimsókn og fara yfir landsleik Íslands og Noregs.

Heimir Þorsteinsson, annar af þjálfurum Fjarðabyggðar, verður á línunni. Fjarðabyggð er sem stendur í fallsæti í fyrstu deildinni en liðið á mikilvægan leik fyrir höndum gegn Fjölni í dag.

Alls eru fimm leikir í fyrstu deildinni í dag og Garðar Gunnar Ásgeirsson sérfræðingur þáttarins í neðri deildunum fer yfir gang mála þar sem og í annarri deildinni.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson en ef þú hefur eitthvað fram að færa í þáttinn er tölvupósturinn [email protected]. Hægt er að hlusta á X-ið á netinu með því að smella hérna

Smelltu hér til að hlusta á eldri útvarpsþætti
Slapp
banner
banner