Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 03. september 2010 13:32
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Marouane Chamakh: Ég á eftir að verða betri
Marouane Chamakh, framherji Arsenal, segist eiga eftir að verða betri þegar hann verður búinn að aðlagast enska boltanum.

Þessi 26 ára gamli Marokkómaður kom frítt til Arsenal frá Bordeaux í sumar.

,,Ég er að aðlagast vel og þjálfarinn (Arsene Wenger) er að gera sitt besta til að ég sé velkominn hjá félaginu," sagði Chamakh.

,,Ég veit að um leið og ég verð búinn að aðlagast þá mun leikur minn batna mikið. Leikmennirnir hafa tekið vel á móti mér, liðsandinn er góður og mér finnst ég vera hluti af fjölskyldu."

,,Við viljum vinna ensku úrvalsdeildina á þessu tímabili og við erum allir einbeittir að því."

Slapp
banner