Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 03. september 2010 16:27
Hörður Snævar Jónsson
Byrjunarlið Íslands gegn Noregi - Ungt lið
Jóhann Berg og Gylfi Þór koma inn í liðið.
Jóhann Berg og Gylfi Þór koma inn í liðið.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Eggert Gunnþór kemur inn á miðjuna.
Eggert Gunnþór kemur inn á miðjuna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Norðmönnum á eftir.

Ólafur stillir upp þokkalegu ungu liði með þá Gylfa Þór, Aron Einar, Eggert Gunnþór og Jóhann Beg á miðsvæðinu.

Veigar Páll byrjar fyrir aftan Heiðar Helguson. Hér að neðan má sjá liið.

Þeir Árni Gautur Arason, Bjarni Ólafur Eiríksson, Brynjar Björn Gunnarsson og Matthías Vilhjálmsson verða utan hóps að þessu sinni.

Markvörður: Gunnleifur Gunnleifsson

Hægri bakvörður. Grétar Rafn Steinsson

Miðverðir. Kristján Örn Sigurðsson, Sölvi Geir Ottesen (F)

Vinstri bakvörður: Indriði Sigurðsson

Hægri kantur: Gylfi Þór Sigurðsson

Miðjumenn: Aron Einar Gunnarsson, Eggert Gunnþór Jónsson

Vinstri kantmaður: Jóhann Berg Guðmundsson

Sóknarsinnaður miðjumaður: Veigar Páll Gunnarsson

Framherji. Heiðar Helguson

Varamenn. Ingvar Þór Kale (M), Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Rúrik Gíslason, Kolbeinn Sigþórsson, Ragnar Sigurðsson, Ólafur Ingi Skúlason, Birkir Bjarnason
Slapp
banner