Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. september 2010 14:36
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sporting Life 
Campbell hefur miklar mætur á Andy Carroll
Sol Campbell leikmaður Newcastle segir að Andy Carroll liðsfélagi sinn geti náð langt.

Carroll hefur skorað fjögur mörk í fyrstu þremur leikjum ensku úrvalsdeildarinnar og þar á meðal er þrenna gegn Aston Villa.

,,Andy er gríðarlega efnilegur," sagði Campbell.

,,Við verðum að sjá til þess að hann verði með fæturna á jörðinni og einbeit sér að fótboltanum."

,,Hann verður að vera duglegur og svo lengi sem hann gerir það þá mun hann bæta sig."

,,Hann er klárlega framtíðarleikmaður."

Slapp