Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. september 2010 14:09
Magnús Már Einarsson
Pape Mamadou Faye: Fyrst og fremst mér að kenna
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Knattspyrnudeild Fylkis hefur rift samningi sínum við framherjann Pape Mamadou Faye vegna trúnaðarbrests eins og kom fram á Fótbolta.net fyrr í dag. Pape hefur verið á mála hjá Fylki upp alla yngri flokkana og hann segir þetta vera leiðinlegan endi á dvöl sinni hjá félaginu.

,,Þetta er mjög leiðinlegt. Ég er búinn að vera hjá liðinu frá því að ég flutti til landsins. Þetta er fyrst og fremst mér að kenna hvernig þetta endaði en því miður er ekkert hægt að breyta því," sagði Pape við Fótbolta.net í dag.

Pape vill ekki greina frá því í hverju trúnaðarbresturinn fólst en hann segist hafa heyrt ýmsar sögur.

,,Ég er búinn að heyra kjaftasögur sem mér finnst vera fyndnar. Ég ætla ekkert að vera að spá í þessu og taka inn á mig það sem aðrir eru að segja. Fólk getur sagt hvað sem það vill en málið er að Fylkir veit hver sannleikurinn er og ég veit það sjálfur, það er alveg nóg fyrir mig."

Pape hefur leikið með meistaraflokki Fylkis undanfarin tvö ár en hann mun nú finna sér nýtt félag.

,,Ég er ekkert að fara að hætta, ég er bara 19 ára og mun halda áfram. Ég trúi því varla að ég sé að hætta í Fylki og sé ekki að fara að spila með Fylki aftur. Ég bjóst aldrei við að vera rekinn frá félaginu en svona er þetta og ég verð bara að halda áfram."
Slapp
banner
banner
banner