Íslendingar á Norðurlöndunum munu standa fyrir stóru móti í Lundi í Svíþjóð helgina 10-12.septeber næstkomandi.
Klakamótið er knattspyrnumót þar sem sjö manna lið íslenskra karlmanna búsettum á Norðurlöndum mætast. Kjörorð Klakamótsins eru: “70% félagsskapur og 30% bolti”.
Mótið í ár er það 29. í röðinni og hefur mótinu vaxið fiskur um hrygg frá því að fyrsta mótið var haldið. Mótið er ætlað fyrir Íslendinga búsetta á Norðurlöndunum, en um 16.000 íslendingar búa í Skandinavíu eða um 5% af íslensku þjóðinni.
Á Klakamótinu 2009 í Óðinsvéum voru þátttakendur um 190 talsins. Fjölmargar fjölskyldur lögðu leið sína til Óðinsvéa til að fylgjast með gangi mála og hitta aðra Íslendinga. Áætlað er að um 1.500 íslendingar hafi komið til að hitta landa sína. Vonast er eftir því að jafnvel enn fleiri mæti til leiks í Lundi nú í september og hafa lið frá Noregi, Finnlandi og annars staðar frá Svíþjóð líst yfir áhuga á að mæta til leiks auk þeirra liða sem koma reglulega frá Danmörku.
Fyrirkomulag mótsins er þannig að liðin mæta á föstudegi og hitta þar fyrir aðra mótsgesti. Dagskráin á föstudeginum er opin að mestu leyti og hugmyndin er að fólk hafi tíma til að kynnast. Þá er dregið í riðla á föstudagskvöldinu. Mótið fer síðan af stað á laugardeginum og er spilað fram eftir kvöldi þar til sigurvegari hefur verið krýndur.
Á leikdeginum er boðið upp á veitingar og skemmtiatriði fyrir unga jafnt sem aldna. Þannig að mikill gestagangur er á meðan mótshaldi stendur. Eftir að sigurvegari hefur verið krýndur er veglegt matarboð og veisla haldin þátttakendum til heiðurs. Mótsslit er síðan á sunnudeginum eftir veglegt morgunverðarhlaðborð og nýjir vinir kvaddir og tilhlökkun hefst fyrir næsta mót.
Smelltu hér til að skoða heimasíðu Klakamótsins




