Heimild: AFP
Búið er að fresta leik Dresden Borea og FC Sachsen Leipzig í þýsku fimmtu deildinni en leikurinn átti að fara fram á morgun.
Það er kannski ekki til frásögu færandi nema fyrir þær sakir að frestunin kemur til þar sem villisvín eyðilagði Jaegerpark, heimavöll Lokomotiv Leipzig.
Það er kannski ekki til frásögu færandi nema fyrir þær sakir að frestunin kemur til þar sem villisvín eyðilagði Jaegerpark, heimavöll Lokomotiv Leipzig.
Villisvínið fór inn á völlinn í vikunni og fór svo illa með völlinn að hann er óleikhæfur fyrir morgundaginn.
Þetta er í annað sinn á þessu tímabili sem Dresden lendir í vandræðum með völlinn en bleyta kom í veg fyrir að liðið gæti spilað gegn FC Sachsen Leipzig.


