Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 03. september 2010 20:46
Fótbolti.net
Norðmenn hirtu stigin þrjú á Laugardalsvelli
Sölvi Geir Ottesen er fyrirliði í kvöld.
Sölvi Geir Ottesen er fyrirliði í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heiðar Helguson var hársbreidd frá því að komast framhjá Jon Knudsen markverði Noregs en féll inni í teignum. Ekkert var þó dæmt.
Heiðar Helguson var hársbreidd frá því að komast framhjá Jon Knudsen markverði Noregs en féll inni í teignum. Ekkert var þó dæmt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið nokkuð sprækur í fyrri hálfleiknum. Hér er hann að klást við John Arne Riise.
Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið nokkuð sprækur í fyrri hálfleiknum. Hér er hann að klást við John Arne Riise.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslendingar fagna hér marki Heiðars Helgusonar.
Íslendingar fagna hér marki Heiðars Helgusonar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
͍sland 1 - 2 Noregur
1-0 Heiðar Helguson ('38)
1-1 Brede Hangeland ('59)
1-2 Mohammed Abdellaoue ('75)

Leik lokið: Leik Íslands og Noregs er lokið með 2-1 sigri Norðmanna. Hvílík vonbrigði! Íslendingarnir voru mun betri í fyrri hálfleik og hefðu mögulega getað skorað fleira en eitt mark og þeir fengu vissulega sín færi í þeim síðari, en Norsararnir voru einfaldlega sterkari í seinni hálfleiknum og Íslendingar fengu kannski það sem þeir áttu skilið úr leiknum. Hvílík vonbrigði að hafa ekki fengið meira úr þessum leik, þetta var hálfpartinn skyldusigur, og aldrei áttu menn að fá minna en jafntefli úr þessari viðureign. En Norðmenn hirða stigin þrjú og ekkert við því að gera úr þessu.

90. mín: Við erum komin í uppbótartíma sem er fjórar mínútur. Koma svo drengir!

88. mín: Norðmenn gera sína síðustu skiptingu. Markaskorarinn Abdellaoue fer af velli og inn kemur Jan Gunnar Solli.

87. mín: Steffen Iversen klúðrar dauðafæri með því að skjóta yfir og í kjölfarið gerir Ísland skiptingu. Rúrik Gíslason fær nokkrar mínútur en Jóhann Berg fer af velli.

86. mín: Fjórar mínútur eftir af venjulegum leiktíma, sókn Íslendinga þyngist en þeir verða að ná inn marki! Koma svo strákar!!!

82. mín: Fyrirliðinn Brede Hangeland fær að líta gula spjaldið eftir að hafa verið allt of seinn í tæklingu á Kristjáni Erni.

79. mín: Þarna voru Íslendingar ljónheppnir!! Norðmenn eru með góða sókn og Abdellaoue er í sannkölluðu dauðafæri, en sem betur fer skýtur hann boltanum yfir. Hræðilega gert hjá framherjanum hjá Hannover en við getum prýsað okkur sæl.

78. mín: Íslendingar halda áfram að vera ógnandi en sem fyrr vantar herslumuninn. Þeir fá þó hornspyrnu sem er hættuleg en Norðmenn bægja hættunni frá.

77. mín: Áhorfendur á Laugardalsvellinum eru 6137. Vonandi ganga flestir þeirra glaðir af velli.

76. mín: Íslendingar gera tvöfalda skiptingu. Þeir Veigar Páll Gunnarsson og Grétar Rafn Steinsson fara af velli og inn koma Birkir Bjarnason og Arnór Sveinn Aðalsteinsson. Norðmenn gera skiptingu einnig, Espen Ruud kemur inn á fyrir Erik Huseklepp.

75. mín: MARK! Mohammed Abdellaoue kemur Norðmönnum yfir eftir klaufaskap í íslensku vörninni! Hann fékk sendingu í gegnum vörnina og kláraði glæsilega! Ekki er spádómsgáfa mín upp á marga fiska.

72. mín: Íslendingar með stórhættulega sókn en Jan Knudsen í markinu nær naumlega að hirða boltann. Ég krefst þess að fá annað íslenskt mark og ég er viss um að það kemur!!

68. mín: Íslendingar eiga fína sókn sem endar með skoti frá Heiðari Helgusyni sem fer framhjá markinu.

64. mín: Ágætis sókn sem kemur eftir innkast frá Aroni Einari! Boltinn berst til Gylfa Sigurðssonar sem á þrumuskot en því miður fer það í Sölva Geir og út af.

63. mín: Lítið að gerast undanfarnar mínútur en það eru þó Íslendingar sem eru talsvert meira í sókn.

59. mín: MARK! Brede Hangeland jafnar metin fyrir Norðmenn upp úr hornspyrnunni. Þetta er hans fyrsta landsliðsmark í 62 leikjum! Hann stökk upp yfir Gunnleif og skallaði í netið. Ótrúlega súrt en Íslendingar geta vel bætt við.

58. mín: Tom Hogli kemst í fínt skotfæri en Aron Einar gerir vel og stekkur fyrir skotið og bjargar í horn.

57. mín: Gömul goðsögn kemur inn á fyrir Björn Helge Riise. Steffen Iversen er mættur á svæðið til að krydda upp á sóknarleik Norðmanna, sem hafa þó verið alveg ágætlega hættulegir.

56. mín: Íslendingarnir halda áfram að pressa! Jóhann Berg á góða sendingu inn á Heiðar Helguson sem er grimmur og reynir að skjóta en varnarmaður Noregs kemst fyrir skotið.

55. mín: Íslendingar hársbreidd frá því að bæta við! Heiðar Helguson komst í fínt skotfæri en gaf boltann út og þar var enginn Íslendingur til að taka á móti honum. Fínasta sókn en óheppilega útfærð!

55. mín: Dauðafæri hjá Noregi!! John Arne Riise þrykkir inn löngu innkasti og boltinn berst til Kjetil Væhler sem nær föstum skalla á markið. Skallinn fer aftur á móti beint á Gunnleif sem ver glæsilega og heldur boltanum!

54. mín: Hræðilegur misskilningur inni í teig! Boltinn fer framhjá Gulla og varnarmanni en sem betur fer ná Íslendingar að hreinsa. Þarna munaði engu og þetta hefði verið hræðilegt mark til að fá á sig.

52. mín: Veigar Páll á flotta stungusendingu inn á Heiðar Helguson en sendingin fer beint í hælinn á Heiðari. Eggert Gunnþór Jónsson fær boltann en þrumar honum lengst framhjá.

48. mín: Norðmenn fá hornspyrnu en Gunnleifur grípur vel inn í. Skömmu síðar á Jóhann Berg hættulegan sprett upp vinstri kantinn eftir að Tom Hogli gerði sig sekan um mistök en enginn var kominn inn í til að taka við góðri fyrirgjöf Jóhanns.

46. mín: Leikurinn er hafinn að nýju! Vonandi halda strákarnir okkar sínu striki!

Hálfleikur: Flautað hefur verið til leikhlés og staðan er 1-0 fyrir Íslandi. Frábært veganesti inn í leikhléið og þetta er algjörlega verðskuldað! Það eru samt 45 erfiðar mínútur eftir, en þetta lofar góðu. Gylfi Sigurðsson er eiginlega bara okkar besti maður á vellinum enn sem komið er, frábært.

44. mín: Ef ég mætti blóta í þessari textalýsingu myndi ég gera það núna! Gylfi Sigurðsson hirðir knöttinn af Norðmanni og keyrir áfram. Hann er fulllengi að keyra á norska varnarmanninn en þegar hann lætur til skarar skríða er hann hindraður á hreint út sagt ólöglegan máta! Dómarinn dæmir ekki neitt og Gylfi allt annað en sáttur! Sjálfur er ég brjálaður! Þetta brot átti sér stað rétt fyrir utan teig og þetta er ekki í fyrsta skiptið í leiknum sem dómarinn er Norðmönnum hliðhollur.

41. mín: Stórkostleg markvarsla hjá Gunnleifi! Hann bjargar Íslendingum algjörlega eftir að fyrirgjöf berst til Abdellaoue sem nær stórkostlegu skoti í fyrsta úr markteig sem fer alveg í hornið. En Gunnleifur sannar það þarna að hann á skilið að vera í landsliðinu.

40.mín: Íslenskir áhorfendur hér í Laugardalnum láta vel í sér heyra og eru ánægðir með stöðuna í leiknum. Þær Sigríður Hauksdóttir, Guðrún Ósk Maríasdóttir, Nataly Sæunn Valencia og Ásdís Vídalín Kristjánsdóttir eru þó líklega með mestu dólgslætin í stúkunni enda fagmennsku dólgar þar á ferð.

40. mín: Morten Gamst Pedersen fær tiltal eftir fólskulegt brot á Grétari Rafni. Hann hefði alveg mátt fá gult fyrir þetta, sérstaklega í ljósi þess að dómarinn elskar gula litinn.

38. mín: MAAAAAAAAAAAAAAAAAARK!!!! HEIÐAR HELGUSON KEMUR ÍSLENDINGUM YFIR EFTIR STÓRKOSTLEGAN UNDIRBÚNING FRÁ GYLFA SIGURÐSSYNI!! GYLFI ÁTTI FRÁBÆRA RISPU HÆGRA MEGIN OG FÍFLAÐI JOHN ARNE RIISE, GAF BOLTANN SÍÐAN INN Í TEIGINN Á HEIÐAR SEM SLÚTTAÐI FRÁBÆRLEGA MEÐ HÁLFGERÐRI HÆLSPYRNU! ÍSLENDINGAR ERU KOMNIR YFIR GEGN NORÐMÖNNUM, FULLKOMLEGA VERÐSKULDAÐ!!

36. mín: Kristján Örn gerir gríðarlega vel og hirðir knöttinn af Mohammed Abdellaoue sem var að komast í ágætis færi. Flott barátta hjá Kristjáni.

35. mín: Íslendingar geysast upp í skyndisókn, Grétar Rafn keyrir upp kantinn en er of seinn að gefa fyrir, þar sem Jóhann Berg var aleinn á fjærstönginni. Morten Gamst Pedersen stökk fyrir knöttinn, en manni fannst boltinn samt fara í höndina á honum. Endursýningar sýndu að greinilega var um hendi að ræða, en líkast til ekki inni í vítateig. Ekkert varð úr hornspyrnu Íslendinga.

34. mín: Sem betur fer hrökk knötturinn af varnarveggnum og í hornspyrnu, þvílík negla hjá Riise! Aron Einar verður samt að fara að passa sig, hann má ekki brjóta mikið meira af sér. Gunnleifur hirðir knöttinn í hornspyrnunni, gerir vel þar.

33. mín: Aron Einar brýtur aftur af sér á stórhættulegum stað. John Arne Riise er nú ekki þekktur fyrir að vera lélegur spyrnumaður og hann mun líkast til taka þessa spyrnu.

32. mín: Aron Einar Gunnarsson fær að líta fyrsta gula spjald leiksins, spjaldaglaði dómarinn hefur látið til sín taka. Mér finnst þetta full gróft spjald en það á samt mögulega rétt á sér. Þess má til gamans geta að Morten Gamst Pedersen skoraði frá miðju, en eftir að flautað hafði verið á brotið.

30. mín: Hálftími liðinn af leiknum, þriðjungur hans, og enn sem komið er hefur leikurinn verið nokkuð jafn en Íslendingar þó ívið betri að fráskildum 10-15 mínútna kafla. Það er engin leið að segja hvar fyrsta markið mun detta, en vonandi verður það í neti Norðmanna.

28. mín: Þarna munaði mjóu! Morten Gamst Pedersen gaf glórulausa sendingu inn í teig á Veigar Pál sem hirti knöttinn og lék ágætlega á nokkra varnarmenn Noregs en einn þeirra náði að kasta sér fyrir skot hans. Íslendingar aðeins að lifna við hérna í Laugardalnum.

27. mín: Veigar Páll Gunnarsson á skalla inni í teig en hann fer beint á Knudsen í markinu. Veigar þurfti að stökkva aftur á bak til að skalla knöttinn en gerði engu að síður vel.

25. mín: Norðmenn eru orðnir heldur hættulegir fyrir minn smekk. Þarna skapaðist mikil hætta inni í vítateig Íslands en Kristján Örn Sigurðsson kom með heimsklassa tæklingu og bjargaði með naumindum. Íslendingar eru að hefa helst til mikið eftir.

23. mín: Íslendingarnir koma með flotta skyndisókn en fyrirgjöf Grétars Rafns inn í teiginn er allt of löng og fer á fjærstöngina þar sem Tom Hogli neglir boltanum upp í stúku.

20. mín: Dauðafæri hjá Noregi! Þeir galopna hægri kantinn og ná góðri fyrirgjöf inn í en Mohammed Abdellaoue rétt missir af knettinum og hann lendir í hrömmum Gunnleifs. Þarna voru tveir Norðmenn óvaldaðir inni í teig og slíkt má alls ekki gerast. Mönnum getur verið refsað ef þeir sofna svona á verðinum, en í þetta skiptið sluppu strákarnir með skrekkinn.

19. mín: Norðmenn fá aukaspyrnu af þvílíkt löngu færi og John Arne Riise lætur vaða. Skot hans er ekkert spes og fer beint í varnarveginn og í innkast.

17. mín: Norðmenn eru aðeins að vinna sig inn í leikinn eftir góða byrjun Íslendinga. Þeir halda boltanum betur innan liðsins og færast aðeins framar á völlinn. Þó er full ástæða til að hafa fulla trú á Íslendingunum en þeir verða þá að halda áfram að gera það sem þeir voru að gera fyrsta stundarfjórðunginn eða svo.

15. mín: Fyrsta skiptið sem Norðmenn skapa hættu. Erik Huseklepp kemst einn upp vinstri kantinn og reynir að sóla Grétar Rafn inni í teignum en þessi öflugi leikmaður Bolton stendur fyrir sínu og hirðir boltann af Huseklepp.

13. mín: Úr hornspyrnunni verður önnur hornspyrna, Jóhann Berg fer aftur að hornfánanum hægra megin. Hann náði góðum bolta inn í í þeirri fyrri og sú seinni var líka mjög góð. Norðmönnum tókst þó að skalla knöttinn út úr teignum.

12. mín: Grétar Rafn og Gylfi spila vel upp hægri kantinn og uppskera hornspyrnu.

10. mín: Íslendingar eru að halda frábærri pressu! Veigar Páll á fínan sprett og Gylfi Þór er frír hægra megin. Veigar Páll lætur boltann út til hægri á Gylfa sem gefur fyrir en norski markvörðurinn nær að grípa inn í, og það með naumindum. Mjög gaman að sjá hversu vel Íslendingarnir byrja, Veigar hefði bara mátt gefa hann aðeins fyrr á Gylfa.

6. mín: Þarna hefði nú mögulega mátt dæma víti! Heiðar Helguson féll inni í vítateig eftir viðskipti við markvörðinn en ekkert var dæmt. Boltinn fór út í innkast og Aron Einar henti knettinum aftur inn. Boltinn barst inn í teig og var þar mikið klafs en Norðmenn náðu að koma boltanum í burtu. Þar barst hann til Gylfa Sigurðssonar sem gerði vel og kom sér í skotfæri en skot hans fór naumlega framhjá. Íslendingarnir byrja þennan leik ferskir.

5. mín: Íslendingarnir eiga fínustu sókn sem endar með því að boltinn berst á vinstri kantinn til Jóhanns Berg sem missir boltann af velli. Vel upp byggð sókn en ekkert varð úr henni.

2. mín: Íslendingarnir fá innkast á hættulegum stað og þangað er Aron Einar mættur til að þrykkja knettinum inn í teig. Norðmenn bægja knettinum út úr teig en Indriði Sigurðsson reynir skot sem fer framhjá markinu. Ágætis tilraun.

1. mín: Leikur Íslands og Noregs í undankeppni EM er hafinn! Það eru strákarnir okkar sem byrja með boltann, áfram Ísland!!

18.55: Þá hafa þjóðsöngvarnir verið leiknir og leikurinn fer í þann mund að hefjast. Íslendingar leika að sjálfsögðu í bláu en Norðmenn leika í hvítu. Markvörðurinn þeirra er í skemmtilega neongulum búningi, það ætti ekki að fara framhjá mönnum hvar markið er.

18.52: Nú fer að styttast í leikinn og spennan fer að hríslast um líkamann. Leikmenn ganga inn á völlinn með ítalska dómarann í fararbroddi. Fáir áhorfendur virðast vera á vellinum en vonandi týnast fleiri inn, strákunum veitir ekki af stuðningnum.

18.47: Norska liðið er með nokkra sterka leikmenn innanborðs, það er ekki hægt að líta framhjá því. Riise bræðurnir þykja nokkuð sterkir, Björn Helge er á mála hjá Fulham á Englandi og John Arne, eða Jon Arnur eins og hann kallar sjálfan sig á íslensku, er á mála hjá Roma á Ítalíu. Hann átti farsælan feril hjá Liverpool og skoraði einmitt í 1-1 jafntefli Íslands og Noregs í Noregi seinast.

18.45: Heiðar Helguson er okkar landsleikjahæsti leikmaður í þessum leik, hann spilar í kvöld sinn 50. landsleik, frábær áfangi hjá Heiðari. Kristján Örn Sigurðsson kemur á eftir honum með 45 leiki undir belti og Grétar Rafn Steinsson spilar sinn 40. leik í kvöld. Þótt ótrúlegt sé er Gylfi Þór Sigurðsson einungis að leika sinn annan landsleik, en hann er sjálfsagt reyndari en margir þessara leikmanna inni á vellinum og hefur gert ótrúlega hluti hjá Reading á Englandi. Hann var seldur til Hoffeinheim í Þýskalandi á dögunum og varð um leið dýrasti leikmaðurinn sem Reading hefur selt frá sér.

18.40: Sölvi Geir Ottesen verður fyrirliði í dag, en hann hefur verið að gera frábæra hluti með FC Kaupmannahöfn og skaut þeim meðal annars í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á dögunum. Hann er því vel fallinn til að stjórna samlöndum sínum inni á vellinum og mun sjálfsagt gera það af stakri prýði.

18.35: Íslenska liðið er án Eiðs Smára Guðjohnsen í kvöld en það jafnast nokkurn veginn út því að Norðmenn eru án John Carew. Persónulega lýst mér samt býsna vel á íslenska liðið, það verður gaman að sjá Veigar Pál þarna fyrir aftan Heiðar Helguson sem hefur byrjað tímabilið með QPR á Englandi frábærlega. Heiðar er duglegur og mikill markaskorari og ætti að geta valdið norsku vörninni talsverðum vandræðum. Veigar Páll hefur stimplað sig inn sem einn af bestu leikmönnum norsku deildarinnar og vonandi mun hann eiga góðan leik í kvöld.

Miðjan er með eindæmum ung að öðru leiti, Gylfi Þór Sigurðsson er á hægri kantinum og Jóhann Berg Guðmundsson á þeim vinstri. Síðan eru þeir Eggert Gunnþór Jónsson og Aron Einar Gunnarsson djúpir fyrir neðan Veigar Pál. Allir þessir leikmenn eru gjaldgengir í U21 landslið okkar og þrír þeirra spiluðu í 4-1 stórsigrinum gegn Þýskalandi á dögunum. Það er því frábært að Óli Jó landsliðsþjálfari sé tilbúinn að henda þessum strákum í djúpu laugina, þarna eru mikil efni framundan og fínt að þeir fái sem mesta reynslu í A-landsliðinu.

18.31: Dómari kvöldsins er Luca Banti frá Ítalíu. Hann er spjaldaglaður með eindæmum og hann er að dæma sinn fyrsta alvöru landsleik. Í þremur leikjum í Evrópudeildinni hefur hann lyft rauða spjaldinu þrisvar og gula spjaldinu tuttugu sinnum. Við gætum því fengið að sjá gula spjaldið fara á loft í kvöld oftar en einu sinni.

18.28: Íslenska liðið er í H-riðli undankeppninnar. Ásamt Noregi eru Portúgal, Danmörk og Kýpur með Íslendingum í liði, en Portúgalar mæta Kýpverjum í kvöld klukkan 19:45. Danir fá hvíld í kvöld, enda veitir ekki af fyrir leikinn gegn Íslendingum á miðvikudag.

18.27: Byrjunarliðin eru dottin í hús, þau má finna hérna neðst í textalýsingunni. Takið vel eftir liði Íslendinga, það er ungt og ferskt!

18.25: Góða kvöldið kæru lesendur, taka tvö! Verið velkomin í beina textalýsingu frá Fótbolta.net af leik Íslands og Noregs í undankeppni EM 2012. Tæknin á Laugardalsvellinum hefur verið stríðnari heldur en Willy Wonka en vonandi er allt komið í lag núna, svo að við getum nú fært ykkur fréttir frá þessum hörkuleik. Fyrst að stafirnir breyttust allir í eitthvað furðulegt letur sem enginn skilur eru þrjár mínútur í að við getum gefið ykkur byrjunarliðin.

Byrjunarlið Íslands: Gunnleifur Gunnleifsson - Grétar Rafn Steinsson, Kristján Örn Sigurðsson, Sölvi Geir Ottesen (F), Indriði Sigurðsson - Gylfi Þór Sigurðsson, Aron Einar Gunnarsson, Veigar Páll Gunnarsson, Eggert Gunnþór Jónsson, Jóhann Berg Guðmundsson - Heiðar Helguson.

Byrjunarlið Noregs: Jon Knudsen - Tom Hogli, Kjetil Wæhler, Brede Hangeland (F), John Arne Riise, Björn Helge Riise (57. Steffen Iversen), Henning Hauger, Mohammed Abdellaoue, Morten Gamst Pedersen, Christian Grindheim, Erik Huseklepp.
Slapp
banner