Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 03. september 2010 19:03
Hörður Snævar Jónsson
Byrjunarlið Englands gegn Búlgaríu
Englendingar eru þessa stundina að leika gegn Búlgaríu í undankeppni EM en leikurinn fer fram á Wembley.

Englendingar komust yfir strax á þriðju mínútu þegar Jermain Defoe skoraði en hann er frammi ásamt Wayne Rooney.

Phil Jagielka og Michael Dawson eru saman í hjarta varnarinnar og Theo Walcott, sem fór ekki á HM í sumar, er á kantinum en hann hefur verið sprækur í upphafi tímabils með Arsenal.

Byrjunarlið Englands:Hart, Glen Johnson, Jagielka, Dawson, Ashley Cole, Walcott, Gerrard, Barry, Milner, Defoe, Rooney.
Varamenn: Foster, Gibbs, Cahill, Carrick, Adam Johnson, Young, Bent.
Slapp
banner
banner