Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fös 03. september 2010 20:15
Magnús Már Einarsson
Tékkland og Þýskaland skildu jöfn - U21 getur unnið riðilinn
Úr fyrri leik Íslands og Tékkland í U21.
Úr fyrri leik Íslands og Tékkland í U21.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Íslenska U21 árs landsliðið á ennþá möguleika á að vinna sinn riðil í undankeppni EM en þetta varð ljóst eftir að topplið Tékklands og Þýskaland gerðu 1-1 jafntefli í dag.

Ísland nær fyrsta sætinu ef liðinu tekst að sigra Tékka með tveimur mörkum í leik liðanna á þriðjudaginn.

Sigurvegarar í öllum riðlunum komast áfram í umspil um sæti á EM og það sama á við um þau fjögur lið sem eru með bestan árangur í öðru sæti í riðlunum tíu.

Ljóst er að Ísland mun lenda í annað hvort fyrsta eða öðru sæti riðlinum en ekki er ennþá ljóst hvort að þau sextán stig sem liðið er með dugi til að komast áfram með bestan árangur í öðru sæti.

Alls eru sex lið ennþá að berjast um þessi fjögur sæti yfir bestan árangur í öðru sæti en í dag varð ljóst að stórlið eins og Ítalía og Frakkland eiga ekki lengur möguleika á að komast áfram.
Slapp
banner
banner
banner