Ísland tapaði 1-2 fyrir Noregi í fyrsta leiknum í undankeppni EM 2012 í kvöld.
Hér að neðan má sjá einkunargjöf Fótbolta.net frá leiknum.
Hér að neðan má sjá einkunargjöf Fótbolta.net frá leiknum.
Hvað þýða einkunirnar:
10 Heimsklassa frammistaða
9 Frábær leikur
8 Mjög góður leikur
7 Fínasta frammistaða
6 Ágætur
5 Ekki nægilega sterkur
4 Slakur
3 Hræðilegur
2 Hvað varstu að gera?
1 Er ekki málið að hætta bara í fótbolta?
Gunnleifur Gunnleifsson (M) (6)
Varði oft á tíðum frábærlega en gerði mistök í fyrra markinu er hann náði ekki til boltans eftir hornspyrnu.
Grétar Rafn Steinsson (6) (Arnór Sveinn Aðalsteinsson, 76)
Var lítið að hleypa varnarmönnum framhjá sér og átti fína spretti fram á við á köflum. Fór síðan meiddur af velli.
Sölvi Geir Ottesen (F) (5)
Gerði stór mikstök í marki númer tvö hjá Noregi þegar hann dekkaði illa. Var þess utan allt í lagi.
Kristján Örn Sigurðsson (6)
Átti fínan leik og bjargaði nokkrum sinnum vel.
Indriði Sigurðsson (5)
Var nokkuð sterkur varnarlega en kom lítið við sögu í sóknarleik liðsins.
Gylfi Þór Sigurðsson (8) (Maður leiksins)
Hættulegasti maður liðsins, gerði frábærlega í því að leggja upp markið fyrir Heiðar og var skapandi.
Aron Einar Gunnarsson (7)
Það sem þú getur ávallt treyst á hjá Aroni Einari er að hann leggur sig 100 prósent fram, hann gerði það í þessum leik og átti góðan leik.
Eggert Gunnþór Jónsson (6)
Var líitð með í spili liðsins en átti ágætis leik og á eflaust eftir að spila mikið í þessari undankeppni.
Jóhann Berg Guðmundsson (6) (Rúrik Gíslason, 86)
Var nokkuð sprækur á köflum en komst aldrei nægilega mikið inn í leikinn.
Veigar Páll Gunnarsson (6) (Birkir Bjarnason, 76)
Átti ágætis spretti í fyrri hálfleik og var að búa til spil. Var hinsvegar týndur í síðari hálfleiknum og var tekinn af velli
Heiðar Helguson (7)
Barðist mikið og skoraði gott mark. Lét varnarmenn Noregs ekki í friði og var nálægt því að skora annað mark.




