,,Við eigum meira skilið en þetta miðað við okkar frammistöðu í fyrri hálfleik," sagði Aron Einar Gunnarsson miðjumaður Íslands eftir 2-1 tapið gegn Norðmönnum í kvöld.
,,Við getum tekið margt jákvætt úr þessum leik. Við verðum þunglyndir uppi á hóteli í kvöld og hugsum um okkar seinni hálfleik og mætum sterkir í leikinn á þriðjudaginn."
Aron Einar og Eggert Gunnþór Jónsson léku saman á miðjunni í dag en þeir hafa áður leikið saman í yngri landsliðinu.
,,Við spiluðum saman í U19 og U21 og ég þekki hann mjög vel. Mér fannst mjög gott að spila með honum. Hann hefur spilað lengi í Skotland og er meiri tætari en ég og ég fæ meiri tíma á boltann."
,,Það eru ákveðin kynslóðaskipti í þessu liði núna og fólk þarf aðeins að gefa okkur tíma í það. Við erum klárir í þessa keppni, við erum hugraðir strákar og við erum klárir í þetta."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























