Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 03. september 2010 22:01
Hafliði Breiðfjörð
Haukur Ingi ræddi við leikmenn Íslands fyrir leikinn
Haukur Ingi Guðnason.
Haukur Ingi Guðnason.
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Haukur Ingi Guðnason leikmaður Keflavíkur ræddi við leikmenn íslenska landsliðsins fyrir leikinn gegn Noregi í kvöld en Haukur Ingi er sálfræðingur að mennt. Þetta sagði Ólafur Jóhannesson þjálfari íslenska liðsins á fréttamannafundi eftir leikinn.

,,Við breyttum aðeins til, við fórum á annað hótel fyrstu tvo dagana og fengum aðeins frið og ró þar. Svo fórum við yfir ákveðna hluti í þessum undirbúningi," sagði Ólafur.

,,Við funduðum aðeins meira um ýmis málefni. Við fórum yfir ákveðna hluti og ræddum ákveðna hluti. Ég fékk mann til að tala við okkur til dæmis, Hauk Inga Guðnason."

,,Það er fínt að hafa svoleiðis mann með sér í þessu til að hjálpa mönnum. Margir af þessum strákum eru ungir og við vorum að leita að manni til að geta leiðbeint okkur og hjálpað okkur að vinna með þá."

,,Ásamt því að hann er líka að vinna með eldri mennina. Allir fremstu íþróttamenn í heiminum eru með sálfræðinga í vinnu. Hann fór gaumgæfilega í aðra hluti og það virkaði mjög vel."

Slapp
banner
banner