,,Þetta er svolítið súrt þar sem við vorum góðir í fyrri hálfleik," sagði Veigar Páll Gunnarsson í samtali við Fótbolta.net eftir 1-2 tap gegn Noregi í kvöld.
Ísland komst yfir í fyrri hálfleik með marki frá Heiðar Helgusyni en tvö mörk frá Norðmönnum í síðari hálfleik varð Íslandi að falli.
,,Síðan í síðari hálfleik gerum við þau mistök að við hleypum þeim aðeins inn í leikinn og þeir fá tvö mörk. Þetta er verulega súrt."
,,Við ætluðum ekki að falla aftur en þetta er eitt af því sem mér finnst merkilegt við fótboltann að þetta gerist ósjálfrátt. Við verðum að bæta úr þessu."
,,Ég held að þetta sé ekki hægt að skrifa þetta á reynsluleysi. Á öllum mínum ferli hefur þetta gerst margoft, þetta gerist bara í fótbolta."
Nánar er rætt við Veigar í sjónvarpinu hér að ofan.























