,,Þetta er virkilega svekkjandi. Þetta er kannski reynsluleysi og við hefðum kannski átt að starta seinni hálfleiknum aðeins sterkara en við gerðum. Við verðum að taka þetta góða úr leiknum, við áttum að vinna þennan leik en við fáum tvö ódýr mörk á okkur og náum ekki að koma til baka," sagði Grétar Rafn Steinsson hægri bakvörður Íslendinga eftir 2-1 tap gegn Norðmönnum í kvöld.
,,Norðmennirnir gerðu vel í seinni hálfleik eins og við gerðum í fyrri hálfleik. Þetta var mjög góður knattspyrnuleikur og það var mjög gaman að taka þátt í honum."
Nokkrir ungir leikmenn voru í byrjunarliði Íslands í dag, leikmenn sem eru ennþá gjaldgengir í U21 árs landsliðið.
,,Þetta eru leikmenn sem eru að spila í deildum í Evrópu, þetta eru engir krakkar lengur. Við verðum að sýna þolinmæði og gefa þeim tíma til að verða ennþá betri og læra inn á lansleiki, þetta er oft öðruvísi en hjá félagsliðum. Ef að þeir halda rétt á spilunum og við höldum áfram að byggja upp þetta lið þá eigum við góða framtíð."
Grétar Rafn fór meiddur af velli á 76.mínútu en Arnór Sveinn Aðalsteinsson leysti hann af hólmi. Það skýrist síðan betur í fyrramálið hvort Grétar nái leiknum gegn Dönum á þriðjudag.
,,Maður þarf að vera skynsamur í staðinn fyrir að þjösna sér of mikið, því miður gekk það ekki núna en maður verður að sjá hvernig maður verður í fyrramálið."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.




















