Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 03. september 2010 22:07
Hafliði Breiðfjörð
Grétar Rafn líklega ekki með Íslandi í Danmörku
Grétar Rafn með í leiknum í dag.
Grétar Rafn með í leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Ólíklegt er að Grétar Rafn Steinsson varnarmaður íslenska landsliðsins verði með liðinu í leiknum gegn Danmörku í Kaupmannahöfn á þriðjudag en þetta tilkynnti Ólafur Jóhannesson þjálfari íslenska landsliðsins á æfingu liðsins í dag.

,,Grétar Rafn hefur verið að glíma við meiðsli í ákveðinn tíma og hann dugði í rétt rúmar 60 mínútur í dag," sagði Ólafur við fréttamenn eftir leikinn í dag.

,,Ég tel minni líkur en meiri að hann fari með okkur til Danmerkur. Meiðslin hans eru þannig að þau þola ekki meira en klukkutíma á vikufresti eða hvernig sem það er. Það er aftan í hnésbótinni á honum. "

Rúrik Gíslason gat ekki leikið í byrjunarliði Íslands í dag eftir að hafa glímt við veikindi í vikunni. Ólafur sagðist þó hafa valið sitt besta lið en Rúrik verður klár í leiknum á þriðjudag.

,,Rúrik var veikur í Danmörku og kom hingað heim og var hálfslappur. Hann verður frískur úti í Danmörku," sagði Ólafur.
Slapp
banner
banner