John Arne Riise leikmaður Roma og norska landsliðsins var að vonum sáttur eftir 2-1 sigur liðsins gegn Íslandi í undakeppni EM í kvöld.
,,Ísland spilaði virkilega vel í fyrri hálfleik en við vorum betri í þeim seinni. Við erum mjög ánægðir með að hafa sigrað þó að við höfum átt slakan leik,“ sagði Riise við Fótbolta.net eftir leikinn.
Mér fannst við vera mjög góðir í seinni hálfleik. Við sendum boltann og hreyfðum okkur og sköpuðum færi. Við hefðum getað unnið stærra en þegar uppi er staðið erum við bara sáttir með þrjú stig.“
„Auðvitað eru Íslendingarnir sárir, þeir spiluðu góðan leik, en við skoruðum tvö mörk og þeir eitt og við tókum stigin þrjú.“























