Rashford orðaður við Bayern - Trafford í markið hjá Newcastle - Trossard á förum frá meisturunum
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   fös 03. september 2010 22:23
Alexander Freyr Tamimi
Hangeland: Þeir hefðu kannski átt að fá víti
Hangeland er hér í baráttunni við Veigar Pál.
Hangeland er hér í baráttunni við Veigar Pál.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brede Hangeland fyrirliði Noregs var að vonum sáttur með 2-1 sigur liðsins gegn Íslandi á Laugardalsvelli í dag. Hann var þó ekki alls kostar sáttur með frammistöðuna og hrósaði hann íslenska liðinu.

„Þetta var mjög mikilvægur sigur. Mér fannst við ekki spila vel en Ísland spilaði mjög vel, sérstaklega í fyrri hálfleik. En við náðum sigrinum og það er það sem mestu máli skiptir,“ sagði Hangeland við Fótbolta.net eftir leikinn.

Aðspurður hvort að sigur Norðmanna hefði verið verðskuldaður, svaraði Hangeland: „Það er erfitt að segja, mér fannst þeir fá færi og þeir hefðu kannski átt að fá víti í fyrri hálfleik. En við fengum tvö til þrjú mjög góð færi til að koma þessu í 3-1, en ég er ekki viss. En hverjum er ekki sama, við unnum leikinn.“

„Þetta var mjög mikilvægur sigur. Við vildum byrja vel en eins og ég sagði, þá vorum við ekki ánægðir með spilamennskuna, en þegar uppi er staðið náðum við þremur stigum og það er betra en að spila vel.


Hangeland valdi einmitt þennan leik til að skora sitt fyrsta landsliðsmark, og var hann ánægður með það.

„Það er gaman að skora mark, nú getur enginn sagt að ég hafi ekki skorað fyrir landsliðið. Það besta við markið er að það hjálpaði okkur að vinna leikinn.“

Hangeland ræddi einmitt um komandi tímabil hjá Fulham og má sjá það hér fyrir ofan.
Slapp
banner
banner
banner