Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður Hoffenheim og íslenska landsliðsins var að vonum svekktur eftir 2-1 tap liðsins gegn Noregi.
„Við vorum á heimavelli og 1-0 yfir í fyrri hálfleik. Spiluðum held ég nokkuð vel í fyrri hálfleik, spiluðum boltanum vel og sköpuðum nokkur færi. En í byrjun seinni hálfleiks mættum við bara ekki til leiks,“ sagði Gylfi.
Gylfa fannst Norðmenn ekki vera sterkari í leiknum.
„Mér fannst það ekki, allavega ekki í fyrri hálfleiknum. En þeir unnu leikinn þannig að þeir geta sagt það.“
„Allt liðið var að spila vel í fyrri hálfleik en mér fannst við vera allir mjög slappir í seinni hálfleik. Við verðum að koma ákveðnari til leiks í seinni ef við ætlum að gera eitthvað,“ sagði Gylfi.
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.


























