Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fös 03. september 2010 22:32
Matthías Freyr Matthíasson
Umfjöllun: Svekkjandi tap gegn Norðmönnum
Norðmenn fagna marki
Norðmenn fagna marki
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Íslendingar fagna marki sínu
Íslendingar fagna marki sínu
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Gylfi Þór var maður leiksins í Íslenska liðinu
Gylfi Þór var maður leiksins í Íslenska liðinu
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
͍sland 1 - 2 Noregur
1-0 Heiðar Helguson ('38)
1-1 Brede Hangeland ('59)
1-2 Mohammed Abdellaoue ('75)

Ísland tók á móti Noregi í fyrsta leik í undankeppni EM. Ólafur Jóhannesson stillti upp liði sem ekki hefur mikla reynslu í stórmótum, semsagt fullt af ungum og efnilegum leikmönnum sem hafa verið að ná góðum árangri með sínum félagsliðum sem og U21 árs landsliðinu. Einnig var nýr fyrirliði í leiknum í kvöld hann Sölvi Geir Ottesen.
Ísland byrjaði leikinn af miklum krafti og óhætt er að segja það að þeir stjórnuðu leiknum meira og minna í fyrri hálfleik.

Ef undanskildar eru 10 mínútur þar sem Norðmenn komust inn í leikinn án þess að skapa sér nein hættuleg færi að nokkru ráði.
Ísland sótti og oft vantaði herslumuninn á að þeir næðu að brjóta vörn Norðmanna á bak aftur. En það var allt annað að sjá til liðsins sérstaklega ef miðað er við síðustu leiki þess. Allt liðið var að vinna vel á vellinum, bæði í sókn og vörn.
Íslendingar vildu fá vítaspyrnu á 6 mínútu leiksins er Heiðar Helguson féll inn í vítateig en ekkert var dæmt og sást það í sjónvarpinu að það var líklegast réttur dómur.

En þrátt fyrir sóknir sem Ísland fékk að þá náðu þeir ekki að skapa sér nein hættuleg færi.

Ekki fyrr en á 38.mínútu leiksins. Gylfi Sigurðsson geystist þá upp kantinn og sólaði John Arne Riise gjörsamlega uppúr skónum inn í teig Norðmanna, sendi boltann fyrir markið og þar var enginn annar en Heiðar Helguson sem setti boltann snyrtilega í markið með hælnum. Virkilega vel gert hjá Heiðari sem var að spila sinn 50 landsleik, en einnig stórkostlega gert hjá Gylfa.

En það skall síðan hurð nærri hælum hjá Íslendingum á 41 mínútu leiksins. Það kom fyrirgjöf fyrir mark Íslands, Mohammed Abdellaoue náði flottu skoti en Gunnleifur Gunnleifsson bjargaði með flottri markvörslu.

En á 44 mínútu gerði dómarinn sig sekur um mistök. Gylfi náði boltanum af Norðmanni, hljóp upp völlinn og var einn á móti tveimur varnarmönnum Noregs, tók sér góðan tíma í að keyra á manninn en loksins þegar hann gaf í upp við vítateigslínuna þegar varnarmaðurinn hindraði hann gróflega og átti Gylfi klárlega að fá aukaspyrnu en ekkert dæmt.

Íslendingarnir fóru því inn í hálfleikinn með verðskuldaða eitt – núll forystu. En Norðmenn byrjuðu seinni hálfleikinn af miklum krafti og pressuðu stíft.
Ekki var samt mikið að gerast í seinni hálfleiknum. Liðin skiptust á að sækja án þess að skapa sér nein færi en Íslendingar gáfu of mikið eftir og leyfðu Norðmönnum að komast upp með allt of mikið.

Gunnleifur bjargaði svo á ótrúlegan hátt á 55 mínútu leiksins. Kjetill Wæhler náði þá föstum skalla eftir sendingu frá John Arne Riise. En Gunnleifur náði að bjarga með því að grípa boltann með löppunum.

En pressan skilaði Norðmönnum árangri á 59 mínútu leiksins. Þeir fengu hornspyrnu og Brede Hangeland var fyrri til en Gunnleifur í boltann og skallaði í netið.
Íslendingar fengu kjörið tækifæri til að skora á 72 mínútu leiksins en Jan Knudsen rétt náði að hirða boltann.

Íslendingar gerðu sig svo seka um slæm varnarmistök á 75 mínútu. Morten Gamst Pedersen átti þá sendingu á Mohammed Abdellaoue sem skoraði örugglega.Þarna átti vörn Íslands að gera betur sem og Gunnleifur í markinu.
Eftir þetta gerðist ekki mikið markvert. Norðmenn sköpuðu sér tvo færi en nýttu þau ekki á meðan Íslendingarnir virtust vera búnir að gefast upp.

Svekkjandi tap sem hefði í raun aldrei átt að eiga sér stað er því niðurstaðan fyrir Ísland. En þrátt fyrir þetta tap er margt jákvætt sem hægt er að taka úr þessum leik. Íslenska liðið eins og það spilaði í fyrri hálfleik var á köflum frábært lið og það er eitthvað sem þeir verða að byggja á. Næst er leikur á móti Danmörku á þriðjudaginn á Parken og það er um að gera fyrir drengina að spýta í lófana og girða upp um sig buxurnar og setja kassann út og spila allan þann leik eins og þeir spiluðu fyrri hálfleikinn í dag.

Byrjunarlið Íslands: Gunnleifur Gunnleifsson - Grétar Rafn Steinsson, Kristján Örn Sigurðsson, Sölvi Geir Ottesen (F), Indriði Sigurðsson - Gylfi Þór Sigurðsson, Aron Einar Gunnarsson, Veigar Páll Gunnarsson, Eggert Gunnþór Jónsson, Jóhann Berg Guðmundsson - Heiðar Helguson.

Byrjunarlið Noregs: Jon Knudsen - Tom Hogli, Kjetil Wæhler, Brede Hangeland (F), John Arne Riise, Björn Helge Riise (57. Steffen Iversen), Henning Hauger, Mohammed Abdellaoue, Morten Gamst Pedersen, Christian Grindheim, Erik Huseklepp.

Slapp
banner