„Í hreinskilni fannst mér við skítlélegir í fyrri hálfleik, við spiluðum alls ekki vel. Við vorum heppnir að vera bara 1-0 yfir í hálfleik. Við hefðum örugglega getað lent fleiri mörkum undir ef Íslendingarnir hefðu nýtt sér það hvað við vorum lélegir,“ sagði Morten Gamst Pedersen leikmaður norska landsliðsins eftir 2-1 sigur þeirra gegn Íslandi í kvöld.
„Hálfleikshléið var mjög gott fyrir okkur. Við töluðum saman og komum betri inn í seinni hálfleikinn. Það var gott að fá tvö mörk og stigin þrjú, við komum hingað með það markmið.“
„Það var mikil pressa á okkur. Við þurftum að vinna þennan leik og það var auðvelt að mistakast, menn voru örlítið stressaðir. Íslendingar voru sterkir í sínum tæklingum en við sýndum betri hliðar í seinni hálfleik og færðum okkur hærra upp á völlinn.“
Viðtalið við Pedersen má sjá í heild sinni hér að ofan.
























